Dagbók blaðamanns frá Airwaves 2026
Grein 2 af 2 í umfjöllun um tónlistarhátíðina Airwaves sem fram fór í Reykjavík 5-7 nóvember 2026. Þessi grein er óháð umfjöllun og ekki kostuð kynning af sjálfri hátíðinni.
Miðvikudagur 4. nóvember
Airwaves hófst á sérviðburði, tónleikum Shygirl í ráðhúsinu. Ég hafði aldrei heyrt um Shygirl áður en markaðsherferð hátíðarinnar fór í gang og nú er ég samt sjálftitluð kúl-gella og menningarspekúlant. Ég held að aldurinn sé að ná mér, eða algórytminn sé að leggja mig í einelti og mismuna mér. Shygirl gefur mikið af sér á sviði, sem gerir listamannsnafnið svolítið borulegt. Ég lagðist svo lágt að segja versta pabbabrandarann á samfélagsmiðlum: “og svo var hún bara ekkert feimin” og held að ég hafi unnið mér inn afslátt á grilldögum í Húsasmiðjunni í leiðinni.
Shygirl. Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026
Ég hafði orð á því við vinkonu mína í upphafi tónleika að þessi tónlist væri svolítið Bjarkar-leg. Mikil áhrif, alveg svona á grensunni með að vera lán eða rán. En svo snerist þetta upp í eitthvað Bjarkar-tribute. Hún talaði um að án Bjarkar væri engin Shygirl. Sem er svosem alveg gott og blessað. Það má alveg hampa Björk meira. Madonna skóp alveg heilt tímabil út frá Björk og gaf aldrei almennilegt kredit, að mér vitandi. Fullt af öðrum listamönnum alltaf að húkka sér far með henni án endurgjalds. En svo fannst mér eitthvað of mikið komið af þessari stórstjörnudýrkun undir restina, kannski af því að Björk var á staðnum og við vorum mörg hver rosalega meðvituð um það. Mig langaði bara að vita meira um Shygirl og hvað hún sjálf stóð fyrir.
Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026.
Fimmtudagur 5. nóvember
Á föstudeginum mætti ég í opnunarhóf hátíðarinnar sem var frekar snyrtilegt. Engar langar ræður eða sérlega kvalarfull leiðinlegheit. Eftirminnilegust á mælendaskrá var verkefnastjórinn og menningarfrömuðurinn Ása Dýradóttir, oft kennd við Mammút, sem steig á svið og sjarmaði alla í yfirlið, sagðist hafa gleymt því sem hún ætlaði að segja, en sagði svo bara alveg passlega mikið. Þetta er hæfileiki sem fáum er gefinn.
Stemmningin var góð eins og endranær á hátíðinni. Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026.
Ég hitti síðan taívanska rapparann Someshiit ásamt fylgifé. Hann hafði ferðast í tvo daga til að spila á hátíðinni og hneigði sig fyrir mér þegar við hittumst. Síðan gaf hann mér útprentaða mynd af kettinum sínum og ég lofaði í staðinn að mæta á tónleikana hans á Rósenberg daginn eftir.
Sumir áhorfendur lifðu sig vel inn í tónlistina. Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026.
Ég tók í höndina á allskonar fólki og var kynnt sem Nína Richter, Local Press. Ég er í dag laganemi og pistlahöfundur í hjáverkum. Síðasta grein sem ég skrifaði fjallaði um hvort að Lúðarnir vissu af Airwaves. Á hátíðinni var ég í slagtogi með vinkonu minni sem starfar sem rannsóknarblaðamaður og eyðir dögunum í að rannsaka brot gegn börnum og spillingu hjá ríkisstofnunum. En ég var Nina Richter, Local Press og var með þennan flotta borða á úlnliðnum því til staðfestingar. Erlendir umboðsmenn og tónlistarfólk brostu til mín og réttu mér nafnspjöld, svona eins og ég hefði vald til að breyta einhverju í þeirra lífi.
Áhorfendur baðaðir grænu ljósi á tónleikum Leith Ross á Nasa. Mynd: Cat Gundry Beck fyrir Iceland Airwaves 2026.
Tónleikar kvöldsins hófust með Andervel í Fríkirkjunni. Það var svo undur fallegt. Andervel er José Luis Anderson frá Mexíkó, búsettur á Íslandi. Hann hefur fengið í lið með sér stjörnur á borð við Sóley og John Grant og blómstrar fallega. Hann hefur einstaka og mikla söngrödd, tónsmíðarnar eru góðar og tónlistarflutningurinn var vandaður. Á milli laganna kynnti hann persónulegar sögur, til að mynda kom hann mér til að gráta þegar hann fjallaði um fuglana í trénu sem birtust þegar amma hans lá banaleguna, en dóttir hennar sem lést fyrir aldur fram hafði lofað að birtast henni í líki þessa fugls. Svona er Andervel. Fríkirkjan klæddi tónlistina vel og haustregnið grét með okkur öllum.
Andervel í Fríkirkjunni. Mynd: Valgeir Skorri fyrir Iceland Airwaves 2026.
Kórinn Kliður tók undir í síðasta laginu. Við áttum ekki séns. Ég skaut mér yfir á mathöll og sem einu sinni var pósthús, fékk mér indverskan mat með núll prósent bjór og leið eins og ég væri í útlöndum. Mætti umboðsmanni inni á baðherbergi sem rétti mér nafnspjald hljómsveitar og skipaði mér að mæta. Ég sagðist ekki komast, ætlaði að sjá annað sem var á sama tíma. Maður er svolítið eins og knattspyrnudómari á Airwaves, maður nær aldrei að gera öllum til geðs.
Kórinn Kliður söng með Andervel í Fríkirkjunni. Mynd: Valgeir Skorri fyrir Iceland Airwaves 2026.
Næst lá leið mín yfir í Iðnó þar sem ég mætti fjölmiðlafólki. Ég fékk athugasemdir varðandi fyrri Airwaves grein, spurningar um hvort að ég hefði komist til botns í því hvort að lúðarnir vissu af Airwaves. Hvort að ég væri með símann hjá þeim. Ég gaf þeim númerin hjá nokkrum lúðum en gat ekki fylgt þessu eftir þar sem ég þurfti að hlusta á austurríska 80's skotna rafdúóið Lucy Dreams sem voru byrjuð að spila sett. Þetta band var vel spilandi en fékk mig samt bara til að líða eins og ég væri viðstödd einhvern gjörning. Póstmódernisminn hefur étið börnin sín. Það litla sem þessir tónleikar skildu eftir sig var hversu mikið þeir voru að reyna að vísa í eldri böndin sem þau voru að reyna að líkjast. Þeirra eigið fótspor var algjörlega afmáð í þessari fortíðarspeglun sem átti örugglega að vera sniðug markaðssetning en endaði bara á því að þurrka sjálfa sig út.
Frá tónleikum Lucy Dreams í Iðnó. Mynd: Florian Trykowski fyrir Iceland Airwaves 2026.
Næst á dagskrá var Brynja á Rósenberg (ekki Brynja Rán, sem var að spila á föstudeginum). Brynja er svona poppskotin R&B lauma Íslands sem bransafólkið þekkir en hún ætti að mínu mati að vera frægari. Hún er sprenglærð í pródúksjón frá Hollandi og nýja efnið hennar er stórkostlegt. Hún var með hörpu og strengjasveit á sviðinu og það var mikið í þetta lagt. Brynju tókst að skapa þarna einstaka tónleika á opnunarkvöldi nýja Rósenberg sem munu seint gleymast, enda var hægt að sjá það á samfélagsmiðlum dagana á eftir að fólk var gersamlega að tapa sér.
Góður rómur var gerður að tónleikum Brynju á Rósenberg. Mynd: Florian Trykowski fyrir Iceland Airwaves 2026.
Doddi og Auður á Rósenberg tóku á móti tónlistarfólkinu eins og höfðingjar alla hátíðina, líkt og þau hafa gert síðustu áratugi. Þau hafa aldeilis staðið vaktina fyrir íslenskt tónlistarlíf og það í vanþakklátum veitingabransa. Hversu margir íslenskir tónlistarmenn ætli hafi fengið sviðsþjálfunina sína á Rósenberg í gegnum tíðina? Það er vöntun á tónleikastöðum í Reykjavík og Rósenberg er menningarstofnun. Þessi hjón eiga heiður skilinn.
Stemningin var góð á Rósenberg. Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026.
Þá mætti vinkona mín sem var harðákveðin í að sjá Mammút. Mögulega keypti hún sér þetta armband til að sjá Mammút. Mér fannst þetta eitthvað óspennandi af því að ég, snobbhænsnið, var búin að bíta í mig að Airwaves væri hátíð sem maður færi á til að sjá ný erlend bönd en ekki eldri íslensk bönd sem maður gæti séð hvenær sem er. Svo var hún búin að ítreka að bandið hefði ekki spilað tónleika síðan 2023 og mér fannst það ekki tiltökumál þar sem árið 2020 var í fyrra. Er það ekki annars?
Frá tónleikum Mammút. Mynd: Atli Freyr Steinsson fyrir Iceland Airwaves 2026.
Þessir tónleikar fóru fram Kolaportinu og þegar við mættum þangað - nokkuð tímanlega - var röðin komin hálfa leið fram fyrir Tollhúsið. Mér var auðvitað allri lokið, enda gat ég ekki farið að standa fyrir utan Kolaportið að bíða eftir að sjá íslenska hjómsveit. Ég stakk upp á því að við settumst inn í hlýjuna á næsta bar og biðum af okkur mestu röðina. En svo hélt röðin bara áfram að lengjast og þéttast. Að lokum gafst ég upp fyrir eigin fávitaskap og viðurkenndi að við þyrftum að fara í þessa röð, sem við og gerðum. Við náðum síðasta Mammút laginu og ég fæ illt í hjartað af samviskubiti gagnvart vinkonu minni þegar ég skrifa þessi orð. Vona að Mammút spili stórtónleika á næstunni svo að ég geti boðið vinkonu minni á þá í sárabætur. Skal kaupa fín sæti og allt. Enda er þetta stórkostlegt band. Það litla sem við náðum af þessum tónleikum var geðveikt.
Útsýni þeirra sem voru aftarlega í röðinni á tónleika Mammút í Kolaportinu. Mynd: Florian Trykowski fyrir Iceland Airwaves 2026.
Það var skrýtið að standa í harðfisklyktinni í Kolaportinu og hlusta á rokktónlist en vera ekki í verslunarmiðstöð að hlusta á popptónlist sem unnin er af gervigreind. Lyktin þarna inni var vafalaust djúp-íslensk upplifun fyrir kúltúr-ferðamennina. Svolítið ógeðsleg fyrir okkur hin.
Ég náði í smá bita af taívanska rapparanum Someshiit á Rósenberg, sem hafði gefið mér mynd af kettinum sínum, enda hafði ég lofað að mæta. Enginn skildi neitt en öllum fannst þetta geðveikt. Fólk var í flottum fötum og enginn horfði í augun á neinum. Ég skynjaði smá tilgerð í loftinu.
Someshiit. Mynd: Cat Gundry Beck fyrir Iceland Airwaves 2026.
Pönkaða rokkbandið Adult DVD fylgdu fast á eftir, spiluðu í Kolaportinu. Adult DVD er stórkostleg sveit frá Bretlandi og ógeðslega skemmtilegt ballband. Þarna var gaman að vera, að hoppa og dansa. Kolaportið var eiginlega fullkominn staður fyrir þessa tónleika.
Frá tónleikum Adult DVD í Kolaportinu. Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026.
Eftir það fórum við yfir í Fríkirkjuna að horfa á hinn belgíska Warhaus. Warhaus datt inn á Spotify hjá mér fyrir nokkrum árum og mér fannst þetta alveg töff. Það hékk á einhverjum playlista hjá mér heilan vetur og ég var orðin spennt. En þegar ég mætti var greinilegt að bandið hafði skipt um stefnu, ákveðið að verða meira sexí og meira… ég veit ekki alveg hvað. Mér leið eins og Tvíhöfði væri að herma eftir Depeche mode. Leðurklæddir félagarnir Sigurjón Kjartans og Jón Gnarr með þýskan hreim að hrópa stikkorð á klúbbnum. Allt rosalega þvingað og tekknó-sexí á euro-english inni í Fríkirkjunni. Túnfiskur á súkkulaðiköku.
Warhaus í Fríkirkjunni. Mynd: Florian Trykowski fyrir Iceland Airwaves 2026.
Mætti kunningjum á leiðinni heim úr kirkjunni og varaði þau við þessari nýju uppfærslu af Tvíhöfða-Warhaus, en bætti því við að hugarfarið skipti máli. Þetta væri gaman ef maður vissi í hvað stefndi. Annars væri þetta eins og að fá sér vatnsglas en uppgötva of seint að það væri vodki í glasinu. Væntingastjórnun heitir þetta víst á íslensku.
Föstudagur 6. nóvember
Ég hóf föstudaginn á því að finna mikið til mín, enda með boðsmiða í sérstakt Færeyingapartý í Iðnó þar sem FMX, eða færeyska tónlistarútflutningsstofan, hafði boðið í drykk og samhristing fyrir blaðamenn og hlutaðeigandi tónlistarfólk á hátíðinni. Þegar ég mætti voru voðalega fáir Færeyingar á staðnum en þeim mun fleiri að spyrja mig hvort að ég væri færeysk eða hefði tengsl við Færeyjar. Þetta var smá eins og stílfærð útgáfa af samkvæmisleiknum Úlfur Úlfur, þar sem fólk á að finna eina Færeyinginn í herberginu og hann á að villa á sér heimildir, en allir hinir eiga að þykjast vera Færeyingar.
En ég hitti samt gott fólk þarna, þó að ég hefði ekki safnað neinum nýjum færeyskum vinum. Á leiðinni út úr partýinu hitti ég færeyska kunningja og sagði þeim að ég kæmi aftur á eftir. Ég var nefnilega að hlaupa yfir í ráðhúsið til að sjá Oyama spila.
Oyama. Mynd: Valgeir Skorri fyrir Iceland Airwaves 2026.
Oyama var fínt. Orkan smá svona eins og ungur maður sem er nýlega byrjaður að nota svitalyktareyði og nennir bara alls ekki að taka til í herberginu sínu og þarf að skila einhverri helvítis spólu út á leigu. Mér fannst það alveg standa fyrir sínu, þetta var mikið nostalgíu Airwaves band. Svo var líka minn fyrrverandi að spila með hljómsveitinni þannig að mér finnst ég smá vanhæf til að fjalla um það. Við hættum samt saman fyrir fimmtán árum, en mér finnst það samt segja svo mikið um hvað þetta land er bjánalega lítið og bransinn líka. Hann var að spila í tveimur böndum á hátíðinni og þarna stóð ég í salnum eins og einhver aðdáandi, mér fannst þetta allt mjög ó-kúl fyrir mig og meira kúl fyrir hann.
Orkan var mikil í áhorfendum en þessi mynd var tekin í Kolaportinu. Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026.
Eftir Oyama hljóp ég yfir á Iðnó til að hlýða á hinn færeyska og ískrandi hressa Sakaris sem var að slá botninn í sitt sett. Sakaris hafði persónulega lofað mér rosalegri sýningu og sagði að hann myndi tefla fram tveimur trommuleikurum og að allt bandið væri færeyskt, þannig að eðlilega varð ég að sjá herlegheitin. Mig grunar að enginn trommuleikari hafi orðið eftir í Færeyjum þetta kvöld. Ég sá samt einn grásprengdan gítarleikara frá Bolton á Bretlandi þarna fremst á sviðinu þannig að ég set fyrirvara á þjóðerni sveitarmeðlima. Kannski er það bara hugarfar að vera Færeyingur, það myndi útskýra þetta partý þarna fyrr um kvöldið.
Sakaris á tónleikum sínum í Iðnó. Mynd: Cat Gundry Beck fyrir Iceland Airwaves 2026.
Eftir Sakaris fórum við aftur yfir í ráðhúsið og kíktum á Sísí Ey tónleika. Þar var mikið dansað og greinilegt að sveitin á mjög stóran aðdáendahóp á hátíðinni. Kannski rennur þetta líka saman við Eurovision frægð síðan Systur slógu í gegn um árið. Á tónleikunum var áberandi vel mannað VIP skilrúm, sérútbúnar svalir við sviðið þar sem efnameira fólk gat borgað pening fyrir að sitja og horfa yfir sviðið, svona eins og kóngafólk. Kóngafólkið eyddi þó mestum tíma í að horfa yfir okkur hin sem vorum að horfa á sviðið á bakvið þau. Að fylgjast með pöplinum en ekki partýinu. Ég skil það. Það er tilgangslaust að borga fyrir betri sæti ef maður fær ekki að sjá fólkið í vondu sætunum.
Frá tónleikum Sísí Ey. Mynd: Fab Latham fyrir Iceland Airwaves 2026.
Á eftir Sísí Ey komu Agent Fresco, annað algjört lykilband fyrir lókalinn á hátíðinni og að auki forsenda armbandsins sem vinkona mín hafði keypt sér á hátíðina. Ég fylgdist með tuttugu mínútum af herlegheitunum og var eiginlega hissa á því að þeir væru svona miklar rokkstjörnur, ég hélt að þetta væri eitthvað krútt-band frá 2008. Þúsaldar-kynslóðar dæmi fyrir fólk í skinny jeans.
Agent Fresco í Ráðhúsinu. Mynd: Cat Gundry Beck fyrir Iceland Airwaves 2026.
En það var gersamlega pakkað í ráðhúsinu þegar ég laumaðist út til þess að þoka mér nær máli málanna, minni uppáhalds tónlistarkonu, sjálfri Cobruh.
Cobrah. Mynd: Florian Trykowski fyrir Iceland Airwaves 2026.
Þegar ég mætti í Kolaportið mætti ég þremur vinum mínum sem tilheyra demógrafíunni af kjarna-aðdáendahópnum, en það myndi vera Samkynhneigðir karlmenn sem elska ögrandi danspopp. Þeir voru fallega klæddir og álíka gíraðir og ég. Svo sátum við á tuskulegum flauels-sófa í anddyri Kolaportsins, pósuðum í laumi eins og við værum í ímynduðum raunveruleikaþætti og biðum eftir drottningunni. Staðurinn fylltist ansi fljótt. Við komum okkur fyrir nálægt sviðinu og allt frá fyrsta tóni DJ Latex var ljóst að Cobrah átti hverja einustu sál þarna inni. Klædd í húðlitaðan latexgalla með korseletti, með langar gervineglur og ljósan síðan makka. Hún leit út eins og andsetin kynlífsdúkka. Frábær á sviði, seldi okkur þessa óhefluðu kynorku, blöndu af „ég á mig sjálf,“ „ég vil þig,“ „þú vilt mig,“ og „ég má þetta ekki en geri það samt.“
Mynd: Florian Trykowski fyrir Iceland Airwaves 2026.
Cobrah stuðar marga og fer öfugt ofan í marga hlustendur, sérstaklega konur. Ég á vinkonur sem gátu ekki verið þarna inni og ég skil það alveg. Þegar fólk er komið með upp í kok af poppkúltúr sem stöðugt reynir að selja okkur líkama kvenna og meta virði í listum þeirra út frá kynþokka og æsku, þá er svolítið borið í bakkafullan lækinn með persónu eins og Cobruh, sérstaklega við fyrstu sýn. En hún talar til mín, enda hef ég verið aðdáandi lengi, og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með þessa tónleika. Ljóshönnun og sviðsetning var til fyrirmyndar, það var öskursungið með hitturum við Brand new bitch og Feminine energy og mig grunar að Íslendingar muni sjá meira af Cobruh á næstu misserum.
Cobrah veifar til tónleikagesta. Mynd: Florian Trykowski fyrir Iceland Airwaves 2026.
Eftir tónleikana sagði ég við kunningja minn að ég sæi lítinn tilgang í að sjá eitthvað fleira. Kvöldið hefði eiginlega verið fullkomið. Þannig að ég fór og hitti vinkonu mína á kokkteilbar sem sat þar með leikaranum Níels, Nilla. Það var röð fyrir utan barinn, sem ég áttaði mig ekki almennilega á í fyrstu. Ég, bláedrú, þrammaði því upp að dyraverðinum og spurði: „er þetta röðin?“ eins og þetta væri fyrsti dagurinn minn á plánetunni Jörð.
„Já, þetta er röðin. En hvern ertu að hitta?“
Ég sagði bara satt. Vinkonu mína, sem er smá fræg. Og svo Nilla.
Þegar ég minntist á nafn Nilla opnuðust himingáttirnar. Dyravörðurinn bað mig afsökunar á því að hafa látið mig standa þarna á götunni, kunningjakonu sjálfs Nilla. Mér var samstundis skóflað inn um dyrnar og svoleiðis hent niður í sæti við hliðina á Nilla sem ég var, nota bene, að hitta í fyrsta sinn. Hann dvaldi nú ekkert lengi en gleymdi að borga drykkina sína þegar hann fór.
Þegar þjónninn spurði hver ætlaði að greiða fyrir drykkina þá bentum við á að Nilli hefði drukkið þessa drykki.
„Ó var þetta hann? Iss, þá bara gleymum við þessu.“
Það er ljóst eftir þetta kvöld, að leikarinn Níels hefur ítök í þessari borg.
Laugardagur 7. nóvember
Eftir að hafa séð sænsku latexdrottninguna Cobruh, fannst mér erfitt að hafa mig út í áframhaldandi tónleikafjör. Mér rann þó blóðið til skyldunnar og vissi að ég þyrfti að skrifa þessa grein sem þú ert að lesa núna. Þegar vinur minn, vel dressaði félagi minn af Cobruh tónleikunum kvöldið áður, tjáði mér að þeir myndu bíða eftir mér á Unu Torfa í ráðhúsinu, fann ég hvernig snobbhænsnið ýfðist upp. Var þetta Airwaves eða Þjóðhátíð í Eyjum? „Er það ekki svolítið Gísli Marteinn?“ svaraði ég, gersamlega að drepast úr yfirlæti á meðan ég klæddi mig í skó og þrammaði síðan niður eftir, allt of góð fyrir þessa úthverfatónlist.
Frá tónleikum Unu Torfa í ráðhúsinu. Mynd: Cat Gundry Beck fyrir Iceland Airwaves 2026.
Síðan mætti ég, keypti mér núll prósent bjór og kom mér fyrir í þvögunni. Auðvitað voru tónleikarnir frábærir. Í fyrsta lagi átti Una salinn, fólk grét og söng með. Gott ef ég varð ekki bara vitni að bónorði, eða kannski missti einhver augnlinsu. Flutningurinn var óaðfinnanlegur. Þetta er líka allt saman vel samið. Ég veit ekki afhverju ég þarf að vera svona ógeðslega leiðinleg, kannski er þetta í ættinni. Ég þarf að biðja Unu Torfa og Gísla Martein afsökunar á þessu öllu saman. Kannski á ég bara fullt erindi á Þjóðhátíð í Eyjum eftir allt saman.
Una Torfa. Mynd: Cat Gundry Beck fyrir Iceland Airwaves 2026.
Á eftir Unu Torfa mætti Kaktus Einarsson á sviðið. Kaktus er svona íslenski Beck, sagði nýr vinur minn, sundgarpur í lumberjack skyrtu með vígalega mottu. Þetta var laukrétt hjá honum. Beck Hansen áhrifin voru augljós en samt vel með farin. Þetta var mjög slípað, nánast eins og þessi ungi upprennandi piltur hefði spilað í mörg ár. Og svo kom það fáránlegasta í þessu öllu saman, Kaktusinn sagði: „Við höfum spilað þetta í 24 ár.“ Hvað meinar maðurinn? Var það klippingin? Það gat ekki verið nokkur leið að þessi maður væri eldri en þrítugur. Ég er með aldursblindu á lokastigi.
Þegar þeir kláruðu settið sá ég glitta í mann sem ég er nokkuð viss um að hafi verið Biggi í Maus. Hann kinkaði kolli föðurlega í átt að sviðinu, svona eins og hann væri búin að leggja einhverja íslenska-rokkbands-blessun fyrir hönd öldungaráðsins yfir þetta sett. En þetta var allt mjög Airwaves-legt. Sviðið var vel notað og skjárinn á bakvið ógeðslega flottur. Ég myndi alveg borga mig inn á tónleika með Kaktus Einarssyni, sérstaklega ef hann myndi deila húðrútínunni sinni.
Kaktus Einarsson. Mynd: Atli Freyr Steinsson fyrir Iceland Airwaves 2026.
Eftir þetta fórum við á Rósenberg. Þar voru Nom De Guerre að koma sér fyrir. Nom De Guerre voru lauma hátíðarinnar. Ég vildi óska þess að þetta ógeðslega flotta band hefði fengið annað svið, þeir hefðu verið algjörlega sturlaðir í Kolaportinu. Rósenberg, jafn dásamlegt og það er, var aðeins of lítið fyrir þessa danshljómsveit. Þetta var brjálæðislega vandað hip-hop-skotið partý, grípandi lagasmíðar. Mikið lagt upp úr sviðsmynd og við vorum farin að öskursyngja með í lokin, - en staðurinn var hálftómur, enda var laugardagskvöld og Inspector Spacetime að fylla Kolaportið á sama tíma, og Skeler í Iðnó.
Nom De Guerre. Mynd: Cat Gundry Beck fyrir Iceland Airwaves 2026.
En mikið sem ég var ánægð með Nom De Guerre. Fullkominn endir á hátíðinni, sitjandi í gluggakistu á hálftómum Rósenberg með gamlan gráan snúrusíma í fanginu.
Ég vildi stundum að ég gæti verið á fleiri en einum stað í einu. Ég vildi líka að við ættum sterkari fjölmiðlaflóru, fleiri menningarblaðamenn og meiri grósku í faginu. Það vantar ekki mannauðinn í þessu landi. Það sem ég sakna mest við Airwaves er er ekki tónlistartengt, heldur það að rekast á aðra blaðamenn, aðra sem eru „local press“, sem hafa meira að gera, eru að skrifa fyrir fleiri blöð. Ég sakna þess að sjá sérhæfða spekúlanta sem fá borgað fyrir að skrifa vandaðar úttektir, sem geta lifað á skrifunum sínum. Fattiði. Ekki bara kostaðar kynningar, duldar auglýsingar og eitthvað kjaftæði. Ég sakna þeirra tíma þegar við gátum stært okkur af margfalt sterkari og fjölbreyttari menningarfjölmiðlun.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗