Óvissa um þátttöku stjarnanna
Óvissa ríkir um þátttöku stærstu stjarna norska landsliðsins í fótbolta, Erling Haaland og Martin Ödegaard, í komandi leikjum norska landsliðsins í knattspyrnu eftir að þeir voru fjarverandi á æfingu liðsins í gær.
Ståle Solbakken landsliðsþjálfari vildi lítið gefa upp um ástæður fjarveru þeirra og sagði aðeins að um minniháttar meiðsli væri að ræða.
Hann kvaðst þó bjartsýnn á að flestir leikmenn hópsins yrðu klárir fyrir leikinn gegn Wales á laugardag.
Noregur mætir Wales í Þjóðadeild UEFA á laugardag og Danmörku þremur dögum síðar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗