Tvíhöfðabarn á leiðinni

Tvíhöfðabarn væntanlegt. Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr árituðu sónarmyndina fyrir spenntan aðdáenda. Ljósmynd/Aðsend

Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr árituðu fleira en afmælisvarning þegar þeir buðu áskrifendum hlaðvarpsins Tvíhöfða til fagnaðar á veitingastaðnum Mossley á Kársnesi.

Einn dyggur aðdáandi mætti með sónarmynd og fékk þá félaga til að árita hana. Það má því segja að sannkallað Tvíhöfðabarn sé á leiðinni í heiminn.

Á annað hundrað manns mættu til að fagna með tvíeykinu, sem heldur upp á þrjátíu ára afmæli Tvíhöfða í ár. Gestir spjölluðu við þá félaga og Pétur Magnússon, formann FHT, og nældu sér í afmælisvarning sem var til sölu í takmörkuðu upplagi. Fjölmargar vörur seldust upp og er meira í framleiðslu.

Þeir Sigurjón og Jón hafa í þrjá áratugi skemmt landsmönnum með húmor, þjóðfélagsrýni og skrautlegum persónum. Afmælisfögnuðurinn heldur áfram hinn 27. nóvember þegar þeir stíga á svið í Eldborg í Hörpu með sýninguna „30 ára brúðkaupsafmæli Tvíhöfða“.

Uppselt er á sýninguna klukkan 21 en aukasýningu hefur verið bætt við klukkan 18 sama dag. Meðal gesta verða Valdimar, Gugga í Gúmmíbát, Suðu Sigfús og Adrian Nigelson.

Ragnheiður Oddlaugardóttir, Jóga Gnarr og Margrét Lilja Guðmundsdóttir sáu um sölu á varning. Ljósmynd/Aðsend

Dyggur aðdáandi Tvíhöfða með þeim á Mossley.

Dyggur aðdáandi Tvíhöfða með þeim á Mossley. Ljósmynd/Aðsend

Jón Gnarr áritar veggspjöld.

Jón Gnarr áritar veggspjöld. Ljósmynd/Aðsend

Jón Gnarr, Pétur Magnússon formaður FHT og Sigurjón Kjartansson.

Jón Gnarr, Pétur Magnússon formaður FHT og Sigurjón Kjartansson. Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

Ásgeir Þór Jónsson eigandi Mossley ásamt Jóni Gnarr.

Ásgeir Þór Jónsson eigandi Mossley ásamt Jóni Gnarr. Ljósmynd/Aðsend

Jón Gnarr og Hrafnhildur Heba.

Jón Gnarr og Hrafnhildur Heba. Ljósmynd/Aðsend

Gestir versluðu varning af miklum móð.

Gestir versluðu varning af miklum móð. Ljósmynd/Aðsend

Jón Gnarr, Pétur Magnússon, Ásgeir Þór og Sigurjón Kjartansson.

Jón Gnarr, Pétur Magnússon, Ásgeir Þór og Sigurjón Kjartansson. Ljósmynd/Aðsend

Nóg var að gera í áritunum fyrir viðstadda.

Nóg var að gera í áritunum fyrir viðstadda. Ljósmynd/Aðsend

Arnar Laufdal náði í síðasta veggplattann og fékk áritun frá Tvíhöfða. Ljósmynd/Aðsend

Margt var um manninn á Mossley.

Margt var um manninn á Mossley. Ljósmynd/Aðsend

Gestir ræddu málin við Ragnheiði Oddlaugardóttur á barnum.

Gestir ræddu málin við Ragnheiði Oddlaugardóttur á barnum. Ljósmynd/Aðsend

Tvíhöfða hamborgrarinn sló rækilega í gegn.

Tvíhöfða hamborgrarinn sló rækilega í gegn. Ljósmynd/Aðsend

Löng röð myndaðist.

Löng röð myndaðist. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅