Segist hafa þurft að fela sig fyrir Jenner

Kylie Jenner á viðburði í byrjun nóvember. Henni hefur verið stefnt af fyrrverandi heimilisstarfsmanni í fjórða sinn á sjö mánuðum. AFP/Lisa O'Connor

Enn einn fyrrverandi heimilisstarfsmaður hefur höfðað mál gegn raunveruleikastjörnunni og athafnakonunni Kylie Jenner. Þetta er fjórða málsóknin á hendur henni á sjö mánuðum vegna meintrar illrar meðferðar á starfsfólki.

Kona sem sinnti heimilisþrifum hjá henni segist meðal annars hafa verið bitin af hundi, fengið piparúða í augu og lokast inni í fataherbergi hennar í rúma klukkustund.

Konan, Dinora Carolina Cabria Amaya, höfðaði mál gegn Jenner, fyrirtækjum hennar og nokkrum starfsmönnum í Los Angeles á dögunum.

Samkvæmt dómsgögnum sem Page Six hefur undir höndum sakar hún þau meðal annars um mismunun vegna fötlunar, hefndaraðgerðir, ólögmæta uppsögn og brot á vinnulöggjöf.

Læstist inni og segir yfirmann hafa hlegið að sér

Amaya segir að yfirmaður hennar hafi eitt sinn sent hana inn í fataherbergi Jenner, sem var læst með aðgangskóða. Þar hafi hún verið læst inni í rúma klukkustund.

Hún kveðst hafa hringt í yfirmanninn í örvæntingu og beðið um hjálp. Hann hafi hins vegar hlegið að henni og sagt henni að bíða þar sem enginn á heimilinu gæti hleypt henni út.

Þá segist Amaya hafa fengið piparúða í andlit og augu þegar úðabrúsi fór óvart af stað við þrif í september 2025.

Hún hafi í kjölfarið glímt við þokusýn og viðvarandi óþægindi í augum. Mánuði síðar hafi hundur bitið hana við þrif á hundakofa á einni af eignum Jenner. Hún segist hafa tilkynnt atvikið en fengið litla aðstoð.

Kveðst hafa þurft að halda sig úr augsýn

Amaya hóf störf hjá Jenner í mars 2025 og vann að eigin sögn yfirleitt sex daga vikunnar. Hún heldur því fram að hún hafi ekki fengið greitt fyrir yfirvinnu né akstur og ferðatíma milli eigna Jenner.

Einnig hafi henni verið gert að yfirgefa herbergi eða halda sig úr augsýn þar sem Jenner vildi ekki sjá hana.

Amaya segir að henni hafi verið sagt upp 6. febrúar, skömmu eftir að hún spurði hvers vegna önnur kona sem sinnti heimilisþrifum fengi aksturskostnað endurgreiddan en hún ekki.

Lögmaður hafnar ásökunum

Michael Rhodes, lögmaður Jenner, hafnar ásökununum. Í svari til Page Six segir hann sama lögmann standa að baki málum fyrrverandi heimilisstarfsmanna hennar og sakar hann um að reyna að knýja fram óréttmætar greiðslur með fjölmiðlaumfjöllun. Jenner muni verjast málunum af fullum þunga.

Tvær aðrar konur sem sinntu heimilisþrifum hjá Jenner höfðuðu mál í apríl vegna meintrar mismununar, áreitni og hefndaraðgerða. Fyrrverandi einkakokkur hennar höfðaði síðan mál í júní og sakaði hana meðal annars um mismunun vegna meðgöngu og ólögmæta uppsögn.

Ásakanirnar í málunum fjórum hafa ekki verið sannaðar fyrir dómi.

Kylie Jenner hafnar ásökununum og hyggst verjast málsókninni af fullum þunga, að sögn lögmanns hennar. AFP/Lisa O'Connor

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅