Sakaður um að leggja hendur á dóttur sína og má ekki hitta hana - „Pabbi sló mig, ég er hrædd“
433
Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 18:30
Wanda Nara og Mauro Icardi.
Mauro Icardi, fyrrverandi framherji Inter, Paris Saint-Germain og Galatasaray, hefur verið úrskurðaður í tímabundið nálgunarbann vegna ásakana um að hafa beitt ellefu ára dóttur sína ofbeldi.
Frá þessu greina þýska blaðið Bild og The Sun.
Wanda Nara, fyrrverandi eiginkona Icardi og móðir stúlkunnar, lagði fram kæru eftir að dóttir þeirra hafði að sögn sent henni skilaboð þar sem hún sagðist óttast föður sinn.
„Pabbi sló mig. Ég er hrædd,“ á stúlkan að hafa skrifað í skilaboðum úr tölvu.
Nara er sögð hafa farið tafarlaust á heimili Icardi í Argentínu eftir að hafa fengið skilaboðin.
Samkvæmt fréttunum neitaði Icardi að ræða við lögreglumenn sem mættu á staðinn eða afhenda tölvuna sem dóttir hans hafði notað.
Dómstóll í Argentínu hefur nú úrskurðað að Icardi megi hvorki hafa samband við dóttur sína né koma nær henni en 100 metra næstu 45 daga.
Icardi, sem er 33 ára, neitar ásökununum alfarið.
„Mauro Icardi hefur aldrei slegið dóttur sína,“ segir í yfirlýsingu frá lögmönnum hans.
Lögmennirnir benda jafnframt á að engin meiðsli hafi fundist á stúlkunni og að engin handtökuskipun hafi verið gefin út.
Málið er nú til meðferðar hjá argentínskum yfirvöldum en Icardi flutti aftur til heimalandsins eftir að samningur hans við Galatasaray rann út síðasta sumar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗