Eigandi sælgætisverslunar í klípu

Sælgætisverslunin er vinsæll viðkomustaður heimamanna og ferðamanna.

Sælgætisverslunin er vinsæll viðkomustaður heimamanna og ferðamanna. Skjáskot/minneapolisnorthwest.com

Robert Wagner, 66 ára eigandi sælgætisverslunarinnar Minnesota's Largest Candy Store í Jordan í Minnesota, hefur verið ákærður fyrir að selja áfengisfyllt sælgæti án tilskilinna leyfa. 

People greinir frá málinu og vísar í dómsgögn. Þar kemur fram að áfengis- og fjárhættuspilaeftirlit Minnesota (e. Department of Public Safety Alcohol and Gambling Enforcement Division) hafi borist nafnlaus ábending 1. júlí um að verslunin seldi sælgæti sem innihéldi áfengi. Í ábendingunni var einnig fullyrt að slíkt sælgæti hefði verið selt ólögráða einstaklingi án þess að beðið væri um skilríki. 

Töldu sig mega selja sælgætið

Eftirlitsmenn fóru í verslunina 22. júlí án þess að kynna sig og keyptu meðal annars súkkulaðihúðuð kirsuber með brennivínsfyllingu og svissneskt Goldkenn-súkkulaði með Jack Daniel´s Tennessee Fire-fyllingu. Áfengisinnihaldi kirsuberjanna var 7,3% en súkkulaðisins 3,58%. 

Samkvæmt ákærunni var sælgætið afgreitt eins og hver önnur vara, án sérstakra ráðstafana vegna áfengisins. Á mörgum sælgætisöskjunum voru þó viðvaranir um að ekki mætti selja vörurnar þeim sem hefði ekki náð áfengiskaupaaldri. 

Við rannsókn málsins kom í ljós að verslunin hafði ekki leyfi til áfengissölu. Eftir að eftirlitsmenn höfðu fengið húsleitarheimild staðfesti Wagner það við þá, samkvæmt ákærunni. Hann sagðist þó hafa talið versluninni heimilt að selja sælgætið. 

Wagner á að koma fyrir dómara 18. desember. 

Hver vara verðmerkt í höndunum

Verslunin á rætur að rekja til eplabáss sem faðir Wagners setti á laggirnar árið 1979. Hún hefur áður vakið athygli fyrir að halda í gamla viðskiptahætti, en þar eru hvorki notaðir strikamerkjaskannar né tekið við kreditkortum.

Bræðurnir Gil og Bob Hartmann, 88 og 87 ára, sjá um að verðmerkja hverja vöru í höndunum, en sælgætisstykkin í versluninni eru sögð skipta hundruðum þúsunda. Gil er tengdafaðir Wagners.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅