Á sjúkrahúsi tveimur dögum fyrir leik á HM
Scott McTominay, miðjumaður Napoli og skoska landsliðsins í fótbolta, greinir frá því að hann hafi þurft að fá rafstuð vegna hjartsláttartruflana aðeins tveimur dögum fyrir fyrsta leik Skota á HM í sumar.
McTominay, sem er 29 ára, fékk meðferðina til að koma hjartslættinum í eðlilegt horf og fékk í kjölfarið leyfi til að spila gegn Haítí, þar sem Skotar unnu 1:0.
„Ég þurfti að fá rafstuð á hjartað. Þetta var tveimur dögum fyrir leikinn gegn Haítí. Maður hefur undirbúið sig svo vel og er í frábæru formi en svo gerist eitthvað svona. Maður hugsar: Hvernig getur þetta gerst fyrir mig?“ sagði McTominay.
„Ég var fullkomlega klár í leikinn en það er auðvitað ekki ákjósanlegt að liggja á sjúkrahúsi tveimur dögum fyrir fyrsta leik á HM og vera svæfður,“ bætti hann við.
McTominay lék einnig allar 90 mínúturnar í töpum Skota gegn Marokkó og Brasilíu á mótinu. Í haust gekkst hann síðan undir brennsluaðgerð (e. ablation) í Manchester til að leiðrétta hjartsláttartruflanir.
Hann missti af fyrstu fjórum leikjum Skota í Þjóðadeildinni en hefur snúið aftur til keppni með Napoli og er kominn í landsliðshópinn á ný.
„Mér líður mjög vel, miklu betur en áður. Þetta var aðgerð sem ég þurfti að fara í. Á ferlinum koma stundum upp aðstæður sem koma manni í opna skjöldu.
„Þetta virðist mun alvarlegra í augum fjölmiðla, fjölskyldu og vina þegar þau sjá fréttir af hjartavandamálum.
Þetta er hins vegar tiltölulega einföld aðgerð sem gekk mjög vel í Manchester. Ég er því afar ánægður með að vera kominn aftur á fótboltavöllinn. Það er það mikilvægasta í lífi mínu og hefur alltaf verið það,“ sagði hann.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗