Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum lést skyndilega

Erlent | AFP | 11.11.2026 | 17:50

Sendiherra Rússa lést skyndilega í Washington DC. Mynd úr safni.

Sendiherra Rússa lést skyndilega í Washington DC. Mynd úr safni. AFP/Yuichi Yamazaki

Alexander Darchiev, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, lést „skyndilega“ í Washington DC.

Fregnirnar komu frá utanríkisráðuneyti Rússa í dag. Ekkert kom þar fram um dánarorsökina.

Darchiev var 66 ára gamall og hafði verið um eitt og hálft ár í starfi. Darchiev var skipaður í embætti í mars í fyrra. Hann var áður sendiherra Rússa í Kanada frá 2014 – 2021.

Utanríkisráðuneytið sagði Darchiev vera framúrskarandi diplómata, reyndan leiðtoga og góðan samstarfsmann.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅