Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum lést skyndilega
Erlent | AFP | 11.11.2026 | 17:50
Alexander Darchiev, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, lést „skyndilega“ í Washington DC.
Fregnirnar komu frá utanríkisráðuneyti Rússa í dag. Ekkert kom þar fram um dánarorsökina.
Darchiev var 66 ára gamall og hafði verið um eitt og hálft ár í starfi. Darchiev var skipaður í embætti í mars í fyrra. Hann var áður sendiherra Rússa í Kanada frá 2014 – 2021.
Utanríkisráðuneytið sagði Darchiev vera framúrskarandi diplómata, reyndan leiðtoga og góðan samstarfsmann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗