Klókur íbúi í Reykjavík vann rúmar 20 milljónir um helgina - Þetta tryggði honum aurinn

Glúrinn tippari vann 20,5 milljónir króna á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag þegar hann var einn Íslendinga með 13 rétta. 

Tipparinn sem keypti miðann á sölustað í Reykjavík, þrítryggði 5 leiki og tvítryggði 3 leiki. 5 leikir voru með einu merki. 

Síðasti leikurinn á seðlinum var leikur Nottingham Forest gegn Man. City.  Tipparinn góði hafði tvítryggt leikinn þannig að hann tippaði á heimasigur eða útisigur. Það var því mikil gleði þegar Nottingham Forest knúði fram 3-1 óvæntan sigur og tryggði tipparanum rúmar 20 milljónir í fyrsta vinning. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅