Miklar umferðartafir á Bústaðavegi

Innlent | mbl | 11.11.2026 | 17:28 | Uppfært 17:43

Miklar umferðatafir hafa verið vegna framkvæmda á Bústaðavegi.

Miklar umferðatafir hafa verið vegna framkvæmda á Bústaðavegi. mbl.is/Sigurður Bogi

Miklar umferðatafir voru í síðdegisumferðinni í dag vegna fræsingar og malbikunar á rampi sem nær af Bústaðarvegi niður á Hafnafjarðarveg í átt að Kópavogi til suðurs.

Framkvæmdirnar hafa staðið yfir frá því klukkun níu í morgun. Þeim átti að ljúka klukkan fimm núna síðdegis.

Var rampurinn lokaður meðan á framkvæmdum stóð. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Framkvæmdir á morgun

Á morgun verða framkvæmdir á Bústaðarvegi inn á rampinn sem fer niður á Kringlumýrarbraut. Þær standa yfir frá klukkan ellefu í fyrramálið til klukkan þrjú síðdegis.

„Búast má við umferðartöfum og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.“

Þá eru einnig fyrirhugaðar malbiksviðgerðir við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Laugavegar í suðurátt. Þar verður þrengt niður í eina beygjurein.

Höggpúðabílar verða við vinnusvæðið til að beina umferð.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅