„Skammarlegt“ að bjóða slíkar bætur
Þrír fyrrverandi vistmenn Bakkakots funduðu með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra fyrr á árinu. Snorri Steinn Vidal lögmaður, sem gætir hagsmuna mannanna, er lengst til vinstri á myndinni. Hann telur fyrirhugað hámark sanngirnisbóta skammarlegt. mbl.is/Karítas
Snorri Steinn Vidal, lögmaður fjölda einstaklinga sem hafa lýst ofbeldi á vistheimilum í æsku, telur fyrirhugað hámark sanngirnisbóta „skammarlegt“ og segir mikla reiði ríkja vegna nýrra frumvarpsdraga forsætisráðuneytisins.
Í samtali við mbl.is gagnrýnir hann meðal annars samanburð stjórnvalda við norska bótakerfið og telur að ekki sé dregin upp rétt mynd af þeim bótum sem greiddar hafi verið í Noregi.
Forsætisráðuneytið birti drög að frumvarpi um almennar sanngirnisbætur í Samráðsgátt stjórnvalda 3. nóvember. Frumvarpinu er ætlað að koma á varanlegu bótakerfi fyrir einstaklinga sem sættu ofbeldi eða illri meðferð þegar þeir voru vistaðir utan heimilis sem börn fyrir tilstilli stjórnvalda. Umsagnarfrestur rennur út 17. nóvember.
Snorri og Bjarki Heiðar Bjarnason, lögmenn hjá Solidum, gæta hagsmuna fleiri tuga einstaklinga sem vistaðir voru sem börn fyrir tilstilli hins opinbera og sættu þar alvarlegu ofbeldi, meðal annars á Bakkakoti.
Í tólf síðna umsögn, dagsettri 10. nóvember, fagna lögmennirnir því að frumvarpsdrögin séu komin fram en leggja jafnframt til umfangsmiklar breytingar á þeim.
Innan við helmingur af upphaflegu hámarki
Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir þremur bótaflokkum, einni, þremur og fimm milljónum króna. Lögmennirnir vilja að fjárhæðirnar verði þrjár, sex og tólf milljónir króna og að heimilt verði að greiða allt að 21,2 milljónir króna í sérstaklega alvarlegum tilvikum.
Snorri bendir á að samkvæmt eldri lögum um sanngirnisbætur hafi upphaflegt hámark bóta verið sex milljónir króna árið 2010. Sú fjárhæð samsvari um 11,6 milljónum króna á verðlagi októbermánaðar 2026, samkvæmt útreikningum lögmannanna.
Hann segir hámarkið sem nú sé lagt til „skammarlegt“ og bendir á að það nemi innan við helmingi af upphaflegu hámarki eldri laga að raunvirði.
Snorri telur að með þessu sé brotaþolum mismunað þegar kemur að bótum vegna sambærilegs ofbeldis. Í umsögninni telja lögmennirnir að slíkur munur fari gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Fyrrverandi vistmenn Bakkakots hafa lýst alvarlegu ofbeldi í æsku. Lögmenn þeirra segja afleiðingarnar hafa fylgt mörgum langt fram á fullorðinsár. mbl.is/Karítas Sveina
„Það er bara hálfur sannleikurinn sagður“
Snorri gagnrýnir einnig að í greinargerð frumvarpsins séu bótafjárhæðirnar meðal annars rökstuddar með vísan til norskrar fyrirmyndar.
„Ég tel að stjórnvöld séu ekki að greina hina norsku fyrirmynd með réttum hætti og ég veit ekki hvort það sé viljandi eða óviljandi gert,“ segir hann.
Hann bendir á að í Noregi hafi bæði ríki og sveitarfélög greitt sanngirnisbætur og að í sumum tilvikum hafi greiðslur sveitarfélaganna bæst við bætur frá ríkinu.
Snorri telur að í íslenska frumvarpinu sé fyrst og fremst horft til greiðslna norska ríkisins, án þess að nægilegt tillit sé tekið til þeirra bóta sem sveitarfélögin greiddu.
„Það er bara hálfur sannleikurinn sagður,“ segir hann.
Hann bendir jafnframt á að samkvæmt íslensku frumvarpsdrögunum sé gert ráð fyrir að framlög ríkis og sveitarfélaga renni í sameiginlegan sjóð. Því sé ekki rétt að bera fyrirhugað hámark heildarbóta hér á landi eingöngu saman við greiðslur norska ríkisins.
Í umsögn lögmannanna er meðal annars vísað til hámarksbóta í Bergen í Noregi árið 2005, sem námu 725 þúsund norskum krónum. Að þeirra útreikningum samsvarar sú fjárhæð um 16,4 milljónum íslenskra króna á verðlagi ársins 2026.
Snorri gagnrýnir jafnframt að aukin áhersla á sálfræðiþjónustu og áfallahjálp sé notuð til að rökstyðja lægri bótafjárhæðir. Hann bendir á að slík þjónusta hafi einnig staðið fyrrverandi vistbörnum til boða áður en eldri lög um sanngirnisbætur tóku gildi.
Mótmælir aðkomu sveitarfélaga að bótaákvörðunum
Snorri gerir jafnframt alvarlegar athugasemdir við að Samband íslenskra sveitarfélaga eigi samkvæmt frumvarpinu að tilnefna tvo af fimm stjórnarmönnum sanngirnisbótasjóðs.
Hann telur óeðlilegt að málsvarar sveitarfélaga taki þátt í að rannsaka hvort sveitarfélög hafi brugðist eftirlitsskyldu sinni og greiði síðan atkvæði um hvort einstaklingar eigi að fá bætur vegna sömu atvika.
Lögmennirnir vilja að stjórnarmenn verði valdir á grundvelli faglegrar hæfni og að sjálfstæði þeirra og óhlutdrægni verði tryggð.
Snorri tekur þó fram að hann telji eðlilegt að sveitarfélögin taki þátt í fjármögnun bótanna. Gagnrýni hans beinist að því að þau eigi jafnframt að hafa aðkomu að ákvörðunum um bótarétt.
Þá gagnrýna lögmennirnir að frumvarpið tryggi ekki brotaþolum lögmannsaðstoð á kostnað ríkisins. Snorri segir slíka aðstoð sérstaklega mikilvæga þar sem erfitt geti reynst að afla gagna um vistun sem átti sér stað fyrir áratugum.
Hann segir jafnframt að stjórnvöld hafi ekki alltaf verið fús til að afhenda gögn sem þau hafi undir höndum.
Mikil reiði meðal brotaþola
Snorri segir afleiðingar ofbeldisins hafa fylgt mörgum umbjóðendum þeirra langt fram á fullorðinsár. Sumir hafi glímt við fíkn og geðræn veikindi og átt erfitt með að ljúka námi eða fóta sig á vinnumarkaði.
Hann leggur áherslu á að þótt fjárhagslegar bætur geti aldrei bætt að fullu fyrir það sem einstaklingarnir hafi gengið í gegnum þurfi þær að vera nægilega háar til að þeir geti bætt hag sinn til lengri tíma.
Snorri segir mikilvægt að stjórnvöld ljúki þessum málum með sóma, bæði fyrir brotaþolana sjálfa og íslenskt samfélag.
Býst við brotaþolum á þingpöllunum
Snorri segir að hann og Bjarki vonist til að verða kallaðir fyrir þingnefnd til að gera nánari grein fyrir athugasemdum sínum. Þeir vilji að tekið verði tillit til þeirra við áframhaldandi vinnu við frumvarpið og að því verði breytt þannig að það byggist á sanngjörnum og eðlilegum grunni.
Hann býst jafnframt við að einhverjir brotaþolanna mæti á þingpallana þegar frumvarpið kemur til umfjöllunar á Alþingi.
Viðbrögðin við frumvarpinu hafi enda verið sterk.
„Við höfum fengið alveg gríðarlega sterk viðbrögð við þessu frumvarpi og það er bara almennt mjög mikil reiði,“ segir Snorri.
Hann segir þau viðbrögð meðal annars hafa orðið til þess að hann hafi talið nauðsynlegt að tjá sig opinberlega um frumvarpið.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
