Frábær endurkoma íslensku strákanna á Spáni

Þórsarinn Ásbjörn Líndal Arnarsson skoraði jöfnunarmark Íslands.

Þórsarinn Ásbjörn Líndal Arnarsson skoraði jöfnunarmark Íslands. mbl.is/Karítas

Íslenska U19 ára lið karla í fótbolta gerði 2:2 jafntefli gegn Spáni í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2027 á Newport Stadium í Wales þar sem riðill íslenska liðsins er leikinn.

Ísland mætir svo Finnlandi á laugardag og heimamönnum í Wales þriðjudaginn 17. nóvember.

Spánverjar voru sterkari í upphafi leiks og tóku forystuna með marki úr vítaspyrnu eftir tíu mínútna leik. Egill Orri Arnarsson, leikmaður Midtjylland í Danmörku, varð svo fyrir því ólani að skora sjálfsmark á 38. mínútu og staðan var 2:0 í hálfeik.

Gabríel Snær Gunnarsson, leikmaður Elfsborg í Svíþjóð, minnkaði muninn á 72. mínútu og Ásbjörn Líndal Arnarsson, leikmaður Þórs á Akureyri, skoraði jöfnunarmarkið fimm mínútum síðar. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅