Henry Winter hjólar í eigendur United – „Maðurinn sem elskar félagið mest er rekinn“

Hinn virti enski knattspyrnublaðamaður Henry Winter hefur skrifað harðorðan pistil um stöðuna hjá Manchester United og yfirvofandi brottrekstur Michael Carrick.

United situr í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar og allt bendir til þess að Carrick verði látinn fara.

Winter segir sorglegt að maðurinn sem beri hvað mesta ást til félagsins sé látinn taka skellinn á meðan þeir sem bera ábyrgð á vandanum haldi sínum stöðum.

„Það er sorgleg birtingarmynd nútímafótboltans að maðurinn sem þykir vænst um Manchester United sé sá sem verið er að ýta út,“ skrifar Winter.

Hann gagnrýnir sérstaklega Omar Berrada, Jason Wilcox, Sir Jim Ratcliffe og Glazer-fjölskylduna.

„Hvað hafa þeir gert fyrir þetta stórkostlega félag? Skuldir og hnignun, göt á þakinu og göt í leikmannahópnum.“

Winter viðurkennir að Carrick hafi gert mistök á tímabilinu og að slakt gengi geti réttlætt brottrekstur hans.

Hann segir hins vegar að Englendingurinn eigi mun meiri virðingu skilið.

„Carrick mun fyrr eða síðar yfirgefa félagið, en félagið mun aldrei yfirgefa hann.“

Winter minnir á að Carrick lék 464 leiki fyrir United og vann meðal annars fimm Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina.

„Það er sorglegt að sá sem þykir svona vænt um félagið fari, á meðan þeir sem láta sér minna annt um það sitja áfram.“

Winter hrósar að lokum stuðningsmönnum United fyrir að syngja nafn Carrick þrátt fyrir slæmt gengi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅