Davíðstíminn: Það hjálpaði okkur að vera svona ættlitlir
Íslenskt samfélag er svo lítið og tengt að það getur verið erfiðleikum háð að fjalla um menn eða málefni án þess að stíga á einhverjar tær. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, höfundar bókarinnar Davíðstíminn um feril Davíðs Oddssonar, segjast telja að það hafi auðveldað þeim skrifin að vera ættlitlir, að upplagi sjómenn að vestan. Þeir eru gestir Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Reynir: „Guðni Ágústsson lýsir þessu ágætlega. Guðni var stjórnarandstöðuþingmaður og Davíð, hann hafði þann hátt á að ef Guðni fór í pontu á Alþingi með þetta gullaldarmál sitt og þessa djúpu, fínu rödd þá stóð hann upp og fór.
Og þannig var það árum saman að hann vildi ekkert með Guðna hafa þangað til það kemur upp sú staða Halldór neyðist til að taka Guðna í ríkisstjórn. Hann er nú orðinn of sterkur og það er ekki hægt að halda honum utan lengur. Þá er hann boðaður á Þingvöll í ráðherrabústaðinn og Davíð segir við hann: „Ja, nú skulum við verða vinir.“ Þar með innsiglaði hann bandalag við mann sem að hefur bara stutt hann allar götur síðan, varið hann í ræðu og riti. Þeir urðu bara perluvinir. Þó að Guðni, hann segi reyndar frá því, hann botnaði nú ekkert í þessu forsetaframboði. Þarna hefði Davíð lent utan vegar?“
Hvað finnst ykkur, höfundunum, skrásetjurum? Hvað finnst ykkur svona merkilegast í bókinni? Er eitthvað eitt sem stendur upp úr?
Jón Trausti: „Fyrir mitt leyti þá hafði ég mestan áhuga á svona samhenginu og þessum þráðum að ná einhvern veginn að sýna þá. Mér fannst eiginlega merkilegast þegar ég sat á Þjóðarbókhlöðunni í kjallaranum, í handritadeildinni, var að lesa leikverk, sem sagt texta leikverks frá áttunda áratugnum eftir Davíð Oddsson og Hrafn Gunnlaugsson og Þórarinn Eldjárn, sem heitir: „Ég vil auðga mitt land“. Og þetta verk fjallar um klíku. Þarna er bankamaður og þarna er skáld og fleiri áhrifamenn, prófessor sem ákveða svona samsæri. Og leikverkið, ég ætla nú ekki lýsa því öllu en leikverkið er eiginlega bara svona einhver útgáfa af öllu sem gerðist í samfélaginu raunverulega síðar. Þetta er svona hálfgert handrit að því hvernig fór með Ísland og samfélagið.“
Nú, þannig að það var til handrit að Davíðstímanum.
„Þetta var svolítið handrit að Davíðstímanum. Ég ætla nú ekki að gefa allt upp um það en þarna voru menn sem að, ég er nú ekki að segja að þetta sé samsæri en þetta er svo ótrúleg tilviljun bara, eða ekki tilviljun. Menn náttúrlega vita hvernig alls konar svona plott virka. Þarna er einhver maður sem á að svipta ærunni, embættismaður sem lætur ekki að stjórn og það á að láta hann delera, sem sagt rugla, og verkið fjallar svolítið um það hvernig fá þeir embættismanninn til þess að líta út eins og vitleysing þannig að hann missir trúverðugleika.
Hliðstæðan er nú kannski eitthvað sem fólk verður að draga upp sjálft og ég ætla nú ekki að gera það fyrir það. En mér fannst þetta merkilegt. Þetta er nú svona, þetta er handrit sem að maður getur ekki nálgast nema fara sérstaklega niður í kjallarann á Þjóðarbókhlöðunni og biðja um að fá það afhent.“
Reynir, eitthvað eitt sem stendur upp úr?
„Ja, það er bara þessi svakalega skýru mörk, harkan og svo húmorinn. Það er allt í þessum manni. Þetta er eins og Lilja Alfreðsdóttir lýsir því þegar hrunið er. Þá er sótt að Davíð úr öllum áttum. Það eru mótmælendur þarna úti og það er allt í ljósum logum bara. Þá hafði hann eiginlega mestar áhyggjur af því hvernig hinum bankastjórunum liði og er svona að tala í þá kjarkinn. Þannig að þetta er bara svo margbrotið og þetta er svo flókinn karakter af því á hinn bóginn er harkan. Óvinurinn. Það er engin vægð þar.“
Er ekki óhætt að segja að Davíð á sínum ferli, hann var aldrei farþegi, hann sat alltaf við stýrið. Hann missti kannski stjórn á bílnum en hann, hann sat við stýrið.
Reynir: „Það má örugglega segja það.“
Jón Trausti: „Ég held það sé líka bara merkilegt, hversu mikilvægt og hversu miklu máli það skiptir að skoða upprunann, það er að segja listamanninn í Davíð, sagnamanninn, leikarann af því að stjórnmál hjá mjög áhrifamiklum stjórnmálaleiðtogum snúast svo mikið um að móta söguþráð, að búa til söguþráð. Og ég ætla ekki að líkja Davíð saman við Donald Trump en Donald Trump er maður sem getur búið til söguþráð sem fólk trúir og fylgir og þá rætist hann oft og fer síðan einhvern veginn.
En þú þarft að kunna að segja sögurnar og kunna að koma fyrir, kunna að sannfæra fólk um að þú sért þessi en ekki hinn bara með látbragði og orðum og hann var snillingur í því að stýra söguþræði samfélagsins og gerði það oft bara á þann hátt sem leiddi fólk áfram í þá átt sem að flestir vildu fara mjög gjarnan. Mér finnst það vera svona lykilatriði til að skoða sem maður kannski áttaði sig ekki á þegar maður skoðar forsöguna, skoðar æskuna, hvernig blandast saman menning og stjórnmál. Við sjáum átakafletina innan Ríkisútvarpsins á einhverju tímabili. Og þetta sér maður eiginlega bara úr fjarlægð. Maður áttar sig ekki alveg á þessu þegar atburðirnir eiga sér stað og brotakenndar fréttir eru sagðar. Mynstrið birtist þegar maður svona dregur aðeins út.“
Reynir: „Þið sjáið til, það er dregin upp mynd af honum sem sonur einstæðrar móður. Þar er enn einn kontrasturinn. Hannes Hólmsteinn heldur þessu mikið á lofti. Hann er bara sonur einstæðrar móður sem vann sig upp í Sjálfstæðisflokknum og til æðstu metorða og svo ef menn fara nú að skoða þá er þetta nú öllu meiri ætt sko þegar farið er að skoða Briemarana og allt þetta sem er hinum megin. Þannig að þetta var ekkert svona einfalt að hann væri þetta, þessi einstæðingur eða hvernig maður á að orða það. Þannig að eins og allt í hans lífi þá er þetta pólitíska lífið og allavegana þá eru svona kontrastar sem …“
Jón Trausti: Ég held það hjálpi okkur nú að vera svona ættlitlir, þannig lagað, með fullri virðingu fyrir öllu því ef maður er of innviklaður þá á maður erfitt með að segja svona sögu af því það eru ekkert allir ánægðir með sína birtingarmynd í svona bók. Ef þú vilt gera það alveg hlutlaust þá er fínt að vera bara sjómaður að vestan að upplagi.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗