Hollendingurinn hættur í Tyrklandi
Hollendingurinn Dirk Kuyt hefur látið af störfum hjá tyrkneska knattspyrnuliðinu Fenerbahçe eftir aðeins rúmlega fjóra mánuði hjá félaginu.
Fenerbahçe greindi frá þessu á miðlum sínum í dag. Kuyt var ráðinn sem aðstoðarþjálfari liðsins í sumar og tók við starfi bráðabirgðaþjálfara liðsins í tveimur leikjum eftir að İsmail Kartal sagði starfi sínu lausu.
Kuyt kom til Fenerbahçe í júlí eftir að hafa stýrt FC Dordrecht í hollensku B-deildinni. Hann kvaddi tyrkneska félagið þó með eftirminnilegum hætti þegar hann stýrði því til 3:2-sigurs á sínum gömlu félögum í Liverpool í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku.
Emre Belozoglu, fyrrverandi leikmaður Fenerbahçe og tyrkneska landsliðsins, er nýr stjóri liðsins og kemur með nýtt þjálfarateymi með sér. Liðið vann 5:0-sigur á Corum í fyrsta leik hans við stjórnvölinn.
Fenerbahçe er í sjötta sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar.
Frábær ferill hjá Liverpool
Kuyt átti farsælan leikmannaferil sérstaklega hjá Liverpool, þar sem hann lék frá 2006 til 2012. Hann spilaði 285 leiki fyrir félagið og skoraði 71 mark.
Hann varð meðal annars deildabikarmeistari með liðinu árið 2012 og lék með því í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2007. Auk þess skoraði hann 24 mörk í 104 landsleikjum fyrir Holland.
Hann gekk til liðs við Fenerbahçe árið 2012 og lék þar í þrjú ár áður en hann sneri aftur til Feyenoord. Hann lagði skóna á hilluna árið 2017 eftir að hafa hjálpað Feyenoord að vinna hollenska meistaratitilinn.
Teşekkürler Dirk Kuyt! Sarı Lacivert hikayemiz yıllar önce başladı ve aramızdaki bağ hiç kopmadı. Önce sahada, sonra kulübede bizimleydin. Çubuklu’ya duyduğun sevgi ve bağlılığınla hepimizin kalbinde özel bir yer edindin. Bu renklere kattığın her şey için sana gönülden teşekkür ediyoruz. Bugün sana veda ediyoruz ancak bu büyük ailedeki yerin hiç değişmeyecek. Çünkü bazı vedalar ayrılık değil, sonsuz bir bağın ifadesidir. Yolun açık olsun Dirk! 🙏
— Fenerbahçe SK (@Fenerbahce) November 11, 2026
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗