Lögum um brottfararstöð frestað um eitt ár

Undirbúningur húsnæðis fyrir brottfararstöðina hefur reynst tímafrekari en áætlað var, meðal annars vegna skipulagsmála. mbl.is/Eyþór

Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur á næstu dögum fram frumvarp þar sem lagt er til að gildistöku laga um brottfararstöð verði frestað um eitt ár eða til 1. desember 2027.

Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.

Frumvarpið var unnið í samráði við dómsmálaráðuneytið. Ástæða frestunarinnar er að undirbúningur húsnæðis fyrir starfsemina hefur reynst tímafrekari en áætlað var, meðal annars vegna skipulagsmála.

Þarf að uppfylla ríkar kröfur

Brottfararstöð og uppbygging hennar er í forgangi hjá dómsmálaráðuneytinu. Eftir að frumvarpið var samþykkt á Alþingi réðst ráðuneytið í umfangsmikla vinnu við að finna og undirbúa rétta húsnæðið. Það er sérhæft og þarf að uppfylla ríkar kröfur um aðbúnað og öryggi enda verður þar vistað frelsissvipt fólk.

Við undirbúning varð ljóst að ekki væri hægt að ljúka öllum nauðsynlegum verkþáttum fyrir fullbúna brottfararstöð áður en lögin tækju gildi. Með því að fresta gildistökunni um eitt ár gefst svigrúm til að vinna áfram að lausn húsnæðismála og undirbúa starfsemina þannig að hún uppfylli öll skilyrði laga.

Samhliða verður gildistöku þeirra breytinga á lögum um útlendinga sem tengjast starfsemi brottfararstöðvar frestað til sama tíma. Það felur meðal annars í sér að núgildandi heimildir til handtöku og gæsluvarðhalds samkvæmt lögum um útlendinga haldast óbreyttar þar til brottfararstöðin tekur til starfa.

Í frumvarpinu verður einnig lagt til að ákvæði um að ráðherra setji reglugerð um skimun ríkisborgara þriðju ríkja öðlist gildi 1. desember á þessu ári. Ákvæðið er að finna í lögum um brottfararstöðina en skimunin tengist ekki starfsemi hennar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅