Beint: Endurkaupaáætlun í Grindavík kynnt
Forsætisráðuneytið og fasteignafélagið Þórkatla boða til kynningarfundar þar sem endurkaupaáætlun Þórkötlu verður kynnt og farið yfir helstu atriði hennar.
Fundurinn hefst klukkan 17 í Gjánni í Grindavík og má finna beint streymi frá honum hér:
Fá að kaupa til baka á sama verði
Grindvíkingum mun bjóðast að kaupa fasteignir í bænum til baka á sama verði og fasteignafélagið Þórkatla greiddi fyrir þær í kjölfar eldumbrotanna á Reykjanesskaga.
Endurkaupin byggjast á fyrirkomulagi sem svipar til leigu með kauprétti. Kaupendur greiða upphafsgreiðslu og síðan mánaðarlegar leigugreiðslur sem koma að stórum hluta til lækkunar á kaupverði eignarinnar.
Stefnt er að því að fyrstu kaupsamningarnir verði undirritaðir í byrjun næsta árs og að afhending fasteigna til fyrri eigenda geti þá hafist.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗