Aflýsa fjölmiðlaviðburðum vegna Pochettino
Bandaríska karlalandsliðið í fótbolta hefur aflýst öllum fjölmiðlaviðburðum dagsins í kjölfar frétta um að þjálfari liðsins Mauricio Pochettino sé á leið til Manchester United.
Sky Sports greindi fyrr í dag frá því að argentínski þjálfarinn hefði náð munnlegu samkomulagi við Manchester United um að taka við liðinu.
Félagið hefur enn ekki tilkynnt um brottrekstur Michaels Carrick sem mætti til vinnu í dag og stýrði æfingu fyrir þá leikmenn sem ekki eru bundnir í landsliðsverkefnum á Carrington æfingasvæði United.
Pochettino undirbýr nú bandaríska liðið fyrir tvo leiki gegn Haítí í átta liða úrslitum Þjóðadeildar Concacaf. Til greina kemur að hann láti af störfum áður en verkefninu lýkur
Pochettino, sem hefur áður stýrt Tottenham, Paris Saint-Germain og Chelsea, er sagður áhugasamur um starfið.
Hann framlengdi samning sinn við bandaríska landsliðið fyrir þremur mánuðum og er samningsbundinn til ársins 2030. Bandaríska knattspyrnusambandið ætti því rétt á bótum ef hann tæki við United sem samkvæmt frétt Sky Sports er 7,5 milljónir punda.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗