Pétur hættir í hagræðingarhópi borgarinnar - „Reynsla síðustu mánaða hefur valdið mér vonbrigðum“

Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, hefur ákveðið að hætta þátttöku í hagræðingarhópi borgarinnar, en hann er ósáttur við starfið í hópnum sem miði heldur að niðurskurði að illa ígrunduðu máli frekar en eiginlegri hagræðingu. Pétur greinir frá ákvörðun sinni á Facebook.

„Ég hef ákveðið að hætta þátttöku í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar. Þegar ég tók sæti í hópnum í sumar gerði ég það af heilindum. Ég tel mikilvægt að við leitum stöðugt leiða til að bæta rekstur Reykjavíkurborgar, nýta fjármuni borgarbúa betur og einfalda stjórnsýsluna. Ég var því tilbúinn til þverpólitísks samstarfs um þetta mikilvæga verkefni.

En reynsla síðustu mánaða hefur valdið mér vonbrigðum.“

Meirihlutinn hafi á skömmum tíma ráðist í umfangsmiklar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar þar sem fjölda starfsfólks var sagt upp störfum og starfsemi lögð niður. Pétur segist hafa verið ósammála mörgum þessara ákvarðana bæði vegna þess hvernig þær voru undirbúnar sem og efnislega.

„Mér hefur fundist allt of mikill hraði einkenna vinnuna og að ákvarðanir hafi ítrekað verið teknar án nægilegrar greiningar á öðrum valkostum og mögulegum afleiðingum. Ég hefði viljað gefa okkur meiri tíma, vanda undirbúninginn betur og meðal annars nýta eðlilega starfsmannaveltu þar sem það væri mögulegt. Það er nefnilega munur á hagræðingu og niðurskurði.“

Að fækka starfsfólki og leggja niður starfsemi feli ekki sjálfkrafa í sér hagræðingu. Skoða þurfi hvað sparast í raun og veru, hvaða þjónusta tapast og hvort ákvarðanir gætu jafnvel verið til þess fallnar að auka kostnað til lengri tíma.

„Ég hef ítrekað komið þessum sjónarmiðum á framfæri, en of mikið hefur borið á milli um forsendur, vinnubrögð og útfærslur. Við þessar aðstæður tel ég ekki lengur forsendur fyrir þátttöku minni. Ég gekk til samstarfsins til að stuðla að vönduðum ákvörðunum og skynsamlegum umbótum. Ég get hins vegar ekki verið áfram í hópnum þegar ég er of oft í grundvallaratriðum ósammála því hvernig staðið er að verkefninu.“

Pétur segist áfram tilbúinn í samstarf með meirihlutanum um ábyrga fjármálastjórn og skynsamlegar umbætur í rekstri, en hagræðing snúist ekki um það hversu mörgum störfum er hægt að fækka eða hversu mikinn sparnað sé hægt að sýna fram á í Excel-skjali.

„Hún snýst um hvort við náum raunverulega að bæta reksturinn og þjónustuna og nýta fjármuni borgarbúa betur.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅