Þóroddur að störfum í Liechtenstein

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 17:00

Á myndinni eru Steinar Stephensen frá FH og Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála hjá KSÍ.

Þóroddur Hjaltalín verður að störfum sem dómaraeftirlitsmaður í Þjóðadeild karla á föstudag. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. 

Hann verður þar á leik Liechtenstein og Aserbaídsjan sem fer fram í Vaduz í Liechtenstein. Leikurinn er liður í D-deild Þjóðadeildarinnar, en þess má geta að íslenska landsliðið er í C-deild.

Aserbaídsjan er í efsta sæti riðilsins með 5 stig eftir þrjá leiki en Liechtenstein er í þriðja og neðsta sæti með 1 stig eftir tvo leiki.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅