Pétur hættir þátttöku
Pétur Marteinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar er hættur þátttöku í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar. mbl.is/Sigurður Bogi
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni, hefur ákveðið að hætta þátttöku í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar. Honum finnst of mikill hraði hafa einkennt vinnu hópsins og að ákvarðanir hafi ítrekað verið teknar án nægilegrar greiningar á öðrum valkostum og mögulegum afleiðingum.
Frá þessu greinir hann í færslu á samfélagsmiðlum í dag.
Pétur segir í færslunni að hann hafi tekið sæti í hópnum í sumar af heilindum.
„Ég tel mikilvægt að við leitum stöðugt leiða til að bæta rekstur Reykjavíkurborgar, nýta fjármuni borgarbúa betur og einfalda stjórnsýsluna. Ég var því tilbúinn til þverpólitísks samstarfs um þetta mikilvæga verkefni.
En reynsla síðustu mánaða hefur valdið mér vonbrigðum.
Meirihlutinn hefur á skömmum tíma ráðist í umfangsmiklar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar, lagt niður starfsemi og sagt upp fjölda starfsfólks. Ég hef verið ósammála mörgum þessara ákvarðana, bæði efnislega og vegna þess hvernig þær hafa verið undirbúnar,“ skrifar Pétur.
Umfangsmiklar breytingar hafa staðið yfir hjá Reykjavíkurborg frá því að nýr meirihluti tók við eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Í þremur uppsagnarlotum, í júní, ágúst og október, var samanlagt vel á annað hundrað starfsmönnum sagt upp.
Munur á hagræðingu og niðurskurði
„Mér hefur fundist allt of mikill hraði einkenna vinnuna og að ákvarðanir hafi ítrekað verið teknar án nægilegrar greiningar á öðrum valkostum og mögulegum afleiðingum. Ég hefði viljað gefa okkur meiri tíma, vanda undirbúninginn betur og meðal annars nýta eðlilega starfsmannaveltu þar sem það væri mögulegt.
Það er nefnilega munur á hagræðingu og niðurskurði.
Það er ekki sjálfkrafa hagræðing að leggja niður starfsemi eða fækka starfsfólki. Við þurfum að skoða hvað sparast í raun, hvaða þjónusta tapast og hvort ákvarðanirnar geti jafnvel reynst dýrari til lengri tíma,“ skrifar hann.
Hann segist ítrekað hafa komið þessum sjónarmiðum á framfæri, en of mikið hafi borið á milli um forsendur, vinnubrögð og útfærslur. Við þessar aðstæður telji hann ekki lengur forsendur fyrir þátttöku sinni.
„Ég gekk til samstarfsins til að stuðla að vönduðum ákvörðunum og skynsamlegum umbótum. Ég get hins vegar ekki verið áfram í hópnum þegar ég er of oft í grundvallaratriðum ósammála því hvernig staðið er að verkefninu,“ skrifar Pétur og segist áfram tilbúinn til samstarfs við meirihlutann um ábyrga fjármálastjórn og skynsamlegar úrbætur í rekstri borgarinnar.
„Góð hagræðing snýst nefnilega ekki um hversu mörgum störfum við fækkum eða hversu mikinn sparnað við getum sýnt fram á í Excel. Hún snýst um hvort við náum raunverulega að bæta reksturinn og þjónustuna og nýta fjármuni borgarbúa betur,“ skrifar Pétur að lokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗