Segir stjórn Landsvirkjunar bera alla ábyrgð

Inga segir Daða ekki skipta sér af dagskrá eða fundarboðum.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, telur stjórn Landsvirkjunar bera alla ábyrgð á málefnum fyrirtækisins í tengslum við starfslok Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra. Hún segir stjórnina sjálfstæða í störfum sínum og að Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, komi þar hvergi að málum.

Þetta kom fram í svari Ingu við fyrirspurn Stefáns Vagns Stefánssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag.

Stefán Vagn spurði Ingu út í misvísandi frásagnir af samskiptum Daða Más við stjórn Landsvirkjunar og fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins. Hann vildi jafnframt vita hvort hún myndi beita sér fyrir því að öll gögn málsins yrðu lögð fram.

Inga sagðist treysta stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis til að upplýsa málið en lagði jafnframt áherslu á sjálfstæði stjórnar Landsvirkjunar.

„Stjórn Landsvirkjunar er sjálfstæð stjórn og mér finnst hún í rauninni bera alla ábyrgð á málunum eins og þeim er fyrir komið í dag,“ sagði Inga.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Eyþór

„Öll kurl skulu koma til grafar“

Stefán Vagn sagðist undrandi á afstöðu ráðherra.

„Það er hins vegar áhugavert að heyra að hæstvirtur ráðherra telji að ábyrgðin liggi öll hjá stjórninni. Ég verð að segja að þetta er áhugaverður vinkill í þessa umræðu.“

Hann spurði í framhaldinu hvort Inga teldi æskilegt að stjórnin leiddi ráðningu nýs forstjóra áður en búið væri að upplýsa að fullu um ágreiningsmálin.

Inga svaraði þeirri spurningu ekki með beinum hætti en ítrekaði að fjármálaráðherra hefði engin afskipti af störfum stjórnarinnar.

„Hann skiptir sér ekki af dagskrá, hann skiptir sér ekki af fundarboðum, hann skiptir sér ekki af neinu. Þar er algjör armslengd á milli.“

Hún sagði þó mikilvægt að málið yrði upplýst til fulls.

„Mér finnst stjórnin bera hér ábyrgð en öll kurl skulu koma til grafar og það styð ég heils hugar,“ sagði Inga.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅