Soil Associaton hættir að votta eldislax

Sjókvíaeldi við Isle of Skye sem er ein af Suðureyjum Skotlands. Unsplash/Craig Thomas

Bresku velgjörðarsamtökin Soil Association hafa ákveðið að hætta lífrænni vottun á breskum eldislaxi.

Í umfjöllun breskra fjölmiðla kemur fram að úttekt samtakanna hafi leitt í ljós að eldið uppfyllti ekki strangar kröfur samtakanna um umhverfismál og velferð fiska.

Samtökin, sem stofnuð voru 1946, hafa í yfir tvo áratugi þróað og sett staðla fyrir lífrænt laxeldi.

Í frétt Intrafish kemur fram að samtökin hafi 9. nóvember sl. upplýst að þau hefðu undanfarin tvö ár farið ítarlega yfir aðkomu sína að greininni.

Telja markmið ekki nást innan ásættanlegs tíma

„Úttektin leiddi í ljós að staðlar samtakanna hefðu stuðlað að jákvæðum breytingum í laxeldisiðnaðinum almennt og að enn væru tækifæri til frekari umbóta. Hins vegar skorti fullnægjandi gögn sem sýndu fram á að staðlarnir tryggðu ásættanlega velferð fiska og árangur í umhverfismálum eða að nægilegar framfarir myndu nást á þessum sviðum innan ásættanlegs tíma,“ segir í umfjölluninni.

Haft er eftir Helen Browning, framkvæmdastjóra Soil Association, að samtökin hefðu í upphafi séð fyrir sér að eldi myndi byggjast á grundvallarreglum lífrænnar framleiðslu, þar sem fjölþætt vistkerfi, með lífverum á mismunandi stigum fæðukeðjunnar, væri nýtt til að skapa laxinum góðar aðstæður og jafnframt lágmarka áhrif eldisins á aðrar tegundir.

„Framfarir í þessa átt hafa hins vegar verið hverfandi,“ segir Browning.

Hlýnun sjávar hafi líka áhrif

Intrafish hefur eftir henni að þó svo staðlar samtakanna tryggðu minni þéttleika fiska í eldiskvíum og bönnuðu notkun þeirra efnameðferða sem hefðu skaðlegust áhrif, væri heildarárangurinn hvað varðaði velferð fiska og umhverfisáhrif ekki nægilega góður til að réttlæta áframhaldandi þátttöku samtakanna.

Þá bendir hún á nýjar áskoranir varðandi velferð eldisfiska, meðal annars marglyttufaraldra sem tengjast hlýnandi sjó.

Hún segir greinina þurfa að ráðast í víðtækara rannsóknar- og þróunarstarf til að takast á við þessar áskoranir.

„Þegar neytendur sjá merki okkar á umbúðum eiga þeir að geta treyst því að grundvallarreglum lífrænnar framleiðslu sé fylgt eins vel og mögulegt er innan þeirra marka sem rekstrarlega hagkvæm framleiðsla setur,“ segir Browning.

Fram kemur að Soil Association muni nú vinna með laxeldisgreininni að því að ákveða tímaramma fyrir afnám heimildar til að nota vottunarmerki samtakanna á eldislaxi.

Í umfjöllun Independent um málið kemur fram að vörur úr bresku sjókvíaeldi verði áfram vottaðar sem lífrænar samkvæmt bæði breskum reglum og reglum Evrópusambandsins, en án merkis Soil Association. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅