Áfall fyrir Eyjamenn

Sigtryggur Daði Rúnarsson.

Sigtryggur Daði Rúnarsson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Sigtryggur Daði Rúnarsson, leikmaður ÍBV í úrvalsdeild karla í handbolta, verður frá keppni næstu mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné. Hann meiddist í leik gegn KA á Akureyri í byrjun október.

Bergvin Haraldsson, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta í samtali við Handkastið og sagði að enn væru einhverjir mánuðir þar til Sigtryggur gæti snúið aftur á völlinn.

Meiðslin bætast við langan meiðslalista ÍBV en Elís Þór Aðalsteinsson, Róbert Sigurðarson, Jakob Ingi Stefánsson og Ívar Bessi Viðarsson hafa ekkert leikið með liðinu á tímabilinu. Þá hafa Dagur Arnarsson og Daníel Þór Ingason einnig glímt við meiðsli.

Eyjamenn hafa þó unnið tvo síðustu leiki sína í deildinni, gegn Víkingi og Stjörnunni. Næsti leikur liðsins er gegn Aftureldingu á morgun, fimmtudag.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅