Missti framan af fingri
Maðurinn var að þrífa roðflettivél þegar fingur vinstri handar drógust inn í hana. Hann missti framan af baugfingri og hlaut fjölþætt brot á litlafingri. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur á bráðadeild Landspítala. mbl.is/Kristinn Magnússon
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu Odda hf. hjá VÍS vegna vinnuslyss þar sem starfsmaður missti framan af fingri við þrif á roðflettivél.
Dómurinn taldi fyrirtækið ekki hafa gætt öryggis starfsmanna með fullnægjandi hætti.
VÍS hélt því fram að maðurinn hefði sjálfur gert öryggisbúnað vélarinnar óvirkan. Dómurinn taldi það hins vegar ósannað og ekki tilefni til að láta manninn bera hluta ábyrgðarinnar vegna eigin sakar.
Dómurinn féll í dag. Ekki var tekin afstaða til fjárhæðar bóta en VÍS var gert að greiða 1,9 milljónir króna í málskostnað sem renna í ríkissjóð. Maðurinn naut gjafsóknar.
Höndin dróst inn í vélina
Slysið varð 21. mars 2018 í fiskvinnslusal Odda á Patreksfirði. Maðurinn var að þrífa roðflettivél þegar fingur vinstri handar drógust inn í hana.
Hann missti framan af baugfingri og hlaut fjölþætt brot á litlafingri. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur á bráðadeild Landspítala.
Maðurinn sagði vélina hafa stöðvast þegar hann lyfti öryggishlíf til að fjarlægja fast roð. Hún hefði síðan skyndilega farið aftur í gang.
VÍS taldi hann hins vegar hafa lagt málmhlut á öryggisskynjara og þannig gert mögulegt að hafa vélina í gangi þótt hlífin væri opin.
Undirritaði tilkynningu sem hann skildi ekki
Dómurinn benti á að hvorki í frumskýrslu lögreglu né fyrri tilkynningu um slysið til Sjúkratrygginga Íslands kæmi fram að maðurinn hefði gert skynjarann óvirkan.
Sú lýsing var hins vegar í annarri tilkynningu sem Oddi útbjó tæpum sjö mánuðum eftir slysið og maðurinn undirritaði.
Tilkynningin var á íslensku en maðurinn er pólskur og skildi ekki íslensku. Ekkert lá fyrir um að efni hennar hefði verið þýtt eða útskýrt fyrir honum á móðurmáli hans. Hann hafnaði því að kannast við lýsinguna og sagðist hafa skrifað undir vegna þess að hann treysti vinnuveitanda sínum.
Engin skýring hefði komið fram á tildrögum eða tilgangi síðari tilkynningarinnar. Dómurinn taldi hana hafa takmarkað sönnunargildi.
Upptöku vantaði af slysinu sjálfu
Á upptöku úr öryggismyndavél sást ekki hvort maðurinn hefði átt við skynjarann. Um 30 sekúndna kafla vantaði á upptökuna á meðan slysið varð. VÍS skýrði það með því að myndavélin tæki aðeins upp þegar hún skynjaði hreyfingu í salnum.
Tveir starfsmenn Odda sögðust áður hafa gert athugasemdir við manninn vegna málmhluta á skynjaranum. Hvorugur þeirra hafði þó séð slíkan hlut eða önnur merki um að átt hefði verið við skynjarann eftir slysið.
Dómurinn taldi framburð þeirra því ekki styðja að maðurinn hefði gert öryggisbúnaðinn óvirkan í umrætt sinn.
Úrbætur ekki gerðar fyrr en eftir slysið
Vinnueftirlitið gerði eftir slysið athugasemdir við öryggisbúnað vélarinnar. Meðal annars væri grind vanstillt og opnaðist of mikið, þannig að hægt væri að koma hendi að hættusvæði.
Þá taldi dómurinn að eftir breytingar á öryggisbúnaðinum hefði verið auðvelt að gera hann óvirkan, í andstöðu við reglur um notkun tækja. Starfsmönnum fyrirtækisins hefði verið kunnugt um þann annmarka en ekki gripið til úrbóta fyrr en eftir slysið, þótt til þess hefði aðeins þurft einfalda og ódýra ráðstöfun.
Einnig skorti skriflegar leiðbeiningar um notkun véla og hættur þeim tengdar.
Nákvæm orsök slyssins var óupplýst. Fyrir lá þó að hönd mannsins hafði komist að hættusvæði vélarinnar þótt öryggisbúnaður hennar hefði átt að koma í veg fyrir það.
Dómurinn taldi standa VÍS nær að sýna fram á að öryggisbúnaðurinn hefði verið fullnægjandi og að ekki hefði mátt koma í veg fyrir slysið með því að framfylgja vinnuverndarreglum. Félagið yrði að bera hallann af sönnunarskorti um þau atriði. Bótaskylda var því viðurkennd.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗