Dómsmálaráðherra væri hollt að hlusta á Miðflokkinn

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tókust á um stofnun brottfararstöðvar á þingfundi í dag. Samsett mynd/mbl.is/Karítas

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýnir dómsmálaráðherra harðlega fyrir að fresta opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga um heilt ár. Sagði hann málið illa undirbúið og spurði hvers vegna stjórnvöld hefðu ekki tekið mark á viðvörunum Miðflokksins. Ráðherra segir undirbúning hafa reynst tímafrekari en áætlað var.

Þetta kom fram í máli Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag en hann beindi fyrirspurn sinni um brottfararstöðina til Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.

Til stóð að brottfararstöð yrði opnuð í desember en nú er stefnt að opnun ári síðar.

„Augljóslega stórkostlegur galli á málinu“

Snorri sagði Miðflokkinn hafa varað við ýmsum þáttum málsins þegar frumvarp um brottfararstöðina var lagt fram. Meðal annars hefði flokkurinn bent á að verkefnið gæti reynst mjög kostnaðarsamt og flókinn rekstur þess gæti undið upp á sig.

Þá hefði Miðflokkurinn sérstaklega varað við því að fella niður heimildir lögreglu til að úrskurða útlendinga í gæsluvarðhald í tengslum við brottvísanir áður en brottfararstöðin væri komin í gagnið.

„Við sögðum að þetta væri augljóslega stórkostlegur galli á málinu sem menn hlytu að reyna að laga,“ sagði Snorri.

Nú hefði komið á daginn að undirbúningur verkefnisins hefði verið ófullnægjandi og að fresta þyrfti framkvæmd þess um heilt ár. Jafnframt væri hætta á að lögin tækju gildi án þess að brottfararstöðin væri tilbúin og lögreglan stæði þá án þeirra gæsluvarðhaldsheimilda sem áður hefðu verið til staðar.

Þannig spurði hann ráðherra hvers vegna ekki hefði verið betur hugað að þessum atriðum við undirbúning málsins og hvort ekki væri eðlilegra að hún bæri sjálf ábyrgð á því að leiðrétta það sem aflaga hefði farið.

Hröð fjölgun hafði áhrif á innviði samfélagsins

Dómsmálaráðherra sagði ríkisstjórnina hafa tekið við erfiðri stöðu í útlendingamálum en að markvisst hefði verið unnið að því að ná betri tökum á málaflokknum. Umsóknum um alþjóðlega vernd hefði fækkað um 10% frá því ríkisstjórnin tók við.

„Ríkisstjórnin er að ná býsna góðum tökum á þessum málaflokki vegna þess að við höfum unnið eftir skýrri stefnu,“ sagði ráðherra.

Hún gagnrýndi jafnframt fyrri stjórnvöld og sagði stefnuleysi hafa ríkt í útlendingamálum í um áratug. Fólksfjölgun hefði numið um 50 þúsund manns frá árinu 2017 og svo hröð fjölgun hefði áhrif á innviði samfélagsins og viðhorf til innflytjenda.

Um frestun brottfararstöðvarinnar sagði ráðherra að undirbúningurinn hefði reynst tímafrekari en gert var ráð fyrir. Frumvarp væri væntanlegt um að lengja gildistökuákvæði laganna um eitt ár svo hægt yrði að ljúka undirbúningi og koma úrræðinu í gagnið.

Hún sagðist jafnframt vænta þess að Miðflokkurinn myndi styðja þá lagabreytingu.

Ekki svona brýnt mál

Snorri ítrekaði gagnrýni sína í seinni fyrirspurn og sagði frestunina sýna að brottfararstöðin hefði ekki verið eins brýnt mál og stjórnvöld hefðu látið í veðri vaka.

Hann gagnrýndi jafnframt að ráðherra teldi sig hafa náð stórum árangri í útlendingamálum með því að breyta reglum sem meðal annars leiddu til þess að erlendir brotamenn gætu fengið afslátt af refsingu sinni.

Snorri sagði Miðflokkinn hafa varað við þessum ágöllum. „Ég held mun frekar að hæstv. ráðherra væri hollt að hlusta frekar á Miðflokkinn á þessu sviði,“ sagði hann. Þar á meðal væri að ráðast að rót vandans með því að leggja núverandi hælisleitendakerfi af í sinni mynd og færa meðferð umsókna um alþjóðlega vernd að verulegu leyti til útlanda, í samstarfi við nágrannaríki.

Lögreglan missi ekki heimildirnar

Ráðherra svaraði því að Miðflokkurinn hefði ekki stutt brottfararstöðina þegar frumvarpið var til meðferðar á Alþingi heldur setið hjá við atkvæðagreiðsluna.

Hún nefndi jafnframt fleiri aðgerðir ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum, þar á meðal lög um farþegalista, afturköllun alþjóðlegrar verndar, afnám 18 mánaða reglunnar og breytingar á reglum um námsmenn. Þá væri unnið að heildarendurskoðun regluverks um dvalarleyfi.

Í lok umræðunnar lagði Þorbjörg áherslu á að lögreglan myndi ekki missa umræddar heimildir til gæsluvarðhalds áður en brottfararstöðin tæki til starfa.

„Þær heimildir sem voru til staðar í lögum verða þar áfram þangað til brottfararstöðin tekur til starfa,“ sagði hún.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅