Helena Margrét á auglýsingaskjái

Helena Margrét Jónsdóttir.

Helena Margrét Jónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Helena Margrét Jónsdóttir myndlistarmaður hefur verið valin til þess að sýna í Auglýsingahléi Billboard 2027 en Billboard efndi í haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Y gallery.

Verk hennar mun birtast á yfir 800 skjám á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið og reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk Helenu Margrétar dag hvern í byrjun árs 2027 eftir því sem fram kemur í tilkynningu.

„Fyrstu dagana í janúar 2027 verður Auglýsingahlé á yfir 800 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið og víðar. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir Helenu Margréti Jónsdóttur sem valin var úr stórum hópi umsækjenda. Valnefnd var skipuð fulltrúum frá Listasafni Reykjavíkur, Y galleríi og SÍM.

Verk Helenu, Vetrargosi og könguló, samanstendur af þremur málverkum, eitt fyrir hvern dag, þar sem við fylgjumst með vetrargosa blómstra og könguló fikra sig upp stilk blómsins yfir dagana þrjá. Vetrargosar eru iðulega meðal fyrstu blóma til að springa út á nýju ári. Blómin framleiða náttúrulega frostvörn og hrinda frá sér snjó og kulda. Þau eru smá og fíngerð blóm sem fer lítið fyrir í görðum, líkt og köngulær. Með því að fylgjast með þeim vaxa og koma saman á fyrstu dögum ársins, verður það sem alla jafna fer framhjá okkur stækkað upp í borgarmyndinni: lítið blóm sem þrýstir sér upp úr snjónum og lítil könguló sem heldur áfram að klifra,“ segir í tilkynningu.

Um Helenu Margréti:

Helena Margrét Jónsdóttir (f. 1996) útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2019 eftir að hafa stundað nám í myndlist við Konunglega Listaháskólann í Haag í Hollandi og Myndlistarskólann í Reykjavík. Helena hlaut hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2025.

Í málverkum sínum fjallar hún gjarnan um þemu á borð við löngun, viðkvæmni, kvíða samtímans og hverfulleika. Með því að setja nákvæmlega útfærða, ofurraunsæja hversdagshluti á borð við gler, plast, köngulær og blóm upp á móti flötum, einlitum bakgrunni skapar hún myndheim þar sem aðdráttarafl og ónotatilfinning fara saman. Þar verða til frásagnir sem vekja bæði forvitni og óþægindi í senn.

Um Auglýsingahlé:

Auglýsingahlé er samstarfsverkefni Billboard, Y gallery og Listasafns Reykjavíkur. Verkefnið er frábær vettvangur fyrir myndlist í almenningsrými og er því ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina. Þeir myndlistarmenn sem áður hafa tekið þátt í verkefninu eru Hrafnkell Sigurðsson, Sigurður Ámundason, Haraldur Jónsson, Roni Horn og Þórdís Erla Zoega.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅