Óviðkomandi komst í bókunarupplýsingar farþega
Óviðkomandi aðili fékk aðgang að tilteknum bókunarupplýsingum farþega, þar á meðal upplýsingum um bókanir hjá Icelandair, vegna öryggisbrests hjá Amadeus.
Fyrirtækið rekur bókunarkerfi fyrir flugfélög víða um heim.
Icelandair hefur ákveðið að gefa út ný bókunar- og miðanúmer fyrir þær óflognu ferðir sem atvikið varðar. Með því vill félagið draga úr hættu á að upplýsingarnar verði misnotaðar.
Samkvæmt tilkynningu Icelandair hafa breytingarnar engin áhrif á fyrirhugaðar ferðir. Farþegar þurfa aðeins að varðveita nýjar bókunar- og miðaupplýsingar sem þeim verða sendar.
Atvikið tilkynnt til Persónuverndar
Engar vísbendingar liggja fyrir um að upplýsingunum hafi verið dreift frekar eða þær misnotaðar, að sögn Icelandair.
Félagið hefur tilkynnt atvikið til Persónuverndar. Rannsókn stendur yfir og Icelandair er áfram í samskiptum við Amadeus um eðli og umfang öryggisbrestsins.
Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá Icelandair, segir félagið taka öryggi persónuupplýsinga farþega alvarlega.
„Eftir að við fengum staðfest að bókanir tengdar Icelandair væru meðal þeirra sem atvikið varðaði tilkynntum við það til Persónuverndar og gripum til ráðstafana til að koma í veg fyrir að upplýsingarnar verði nýttar til að fá aðgang að bókunum. Við munum halda rannsókn málsins áfram í samstarfi við Amadeus,“ segir Rakel í tilkynningunni.
Vara við svikatilraunum
Icelandair hvetur farþega til að gæta að öryggi persónuupplýsinga sinna og vera á varðbergi gagnvart svikatilraunum.
Félagið tekur fram að það muni aldrei óska eftir greiðslukortaupplýsingum eða öðrum viðkvæmum upplýsingum í tölvupósti.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/62/95/1629555.jpg)