Margir minnast Marðar Árnasonar af mikilli hlýju - „Það var aldrei lognmolla í kringum Mörð!“

Mörður Árnason, fyrrum þingmaður, lést í gærmorgun, 73 ára að aldri, á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eftir erfið veikindi síðustu tvo mánuði, en hann hafði barist við krabbamein síðustu tólf ár. 

Mörður kom víða við á löngum ferli sínum. Hann var málvísindamaður og starfaði meðal annars hjá Orðabók Háskólans, sem blaðamaður og síðar ritstjóri Þjóðviljans og var ritstjóri hjá Máli og menningu. Hann lét einnig til sín taka í stjórnmálum og sat á þingi fyrir Samfylkinguna árin 2003–2007 og 2010–2013. Hann sat eins í mörgum stjórnum og nefndum, svo sem í útvarpsráði, stjórn RÚV, menntamálanefnd og í Íslandsdeild Evrópuþingsins. Mörður var líka húmanisti sem sat um tíma í stjórn Siðmenntar og gegndi sjálfboðastarfi fyrir knattspyrnulið sitt, KR. 

Á löngum ferli kynntist hann mikið af fólki sem minnist hans í dag af mikilli hlýju og söknuði. 

Siðmennt segir að Mörður hafi barist fyrir trúfrelsi með gleðina og húmorinn að vopni. Hann hafi verið manna fyrstur til að grípa míkrafóninn í karaókí þar sem hann tók gjarnan lög eftir Bítlana. Húmanistinn „Siðmennt syrgir góðan félaga. Mörður var hjálpsamur, vitur, skýr og gagnrýninn í hugsun en jafnframt foringjahollur, framsýnn, barngóður og mikill gleðigjafi“

Inga Auðbjörg Straumland, fyrrum formaður Siðmenntar, minnist fyrstu kynna sinna af Merði með eftirfarandi hætti: „Ég held að fyrsta minning mín af Merði, önnur en að fylgjast með honum úr fjarlægð í sviðsljósi fjölmiðlanna, hafi verið á flokksstjórnarfundi í FG, þar sem ég fór í pontu og barmaði mér eitthvað, og hann kom til mín, klappaði mér á kinnina og sagði: „Aumingja Álftnesingar.“ Stórskrítinn. Eins og ég.“

KR-ingurinn

KR segir Mörð hafa verið einn þeirra allra bestu. „Mörður var alltaf mættur fyrstur á leikina til að standa sína vakt. Það fylgdi því ákveðið öryggi og ró þegar hann var mættur á svæðið. Hann var maður sem hægt var að treysta á, alltaf tilbúinn að leggja sitt af mörkum fyrir félagið sitt.“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason er þakklátur fyrir kynni sín af Merði sem honum þykir þó hafa kvatt alltof snemma. Merði lýsir fjölmiðlamaðurinn með eftirfarandi hætti: „leiftrandi gáfaður, mælskur, stundum jafnvel um of, hvass, gat verið bráðfyndinn.“

Jafnaðarmaðurinn

Rithöfundurinn Margrét Tryggvadóttir kynntist Merði um aldamótin þegar hún hóf störf hjá Máli og menningu. Síðar lágu leiðir þeirra saman á Alþingi. „Eftir að minni þingsetu lauk var hann duglegur að hvetja mig til að halda áfram á því sviði og benda mér á glufur í hans eigin flokksliði sem honum fannst tilvalið að ég fyllti. Þegar ég gekk loks til liðs við Samfylkinguna var enginn faðmur jafn breiður og hans.“

Fyrrum þingmaðurinn Skúli Helgason segir Mörð einn heilsteyptasta einstaklinginn sem hann hafi unnið með í stjórnmálum. „Eldheitur jafnaðarmaður, gagnrýninn prinsippmaður og skarpur, vandvirkur með afbrigðum.“

Jafnaðarmaðurinn Axel Jón Ellenarson kynntist Merði þegar þeir sátu saman í stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. „Mörður var rökfastur og hafði einstaka hæfileika til að sjá kjarna hvers máls. Yfirburðamaður að færa rök fyrir máli sínu“

Fyrrverandi borgarfulltrúinn Sara Björg Sigurðardóttir segir Mörð hafa verið einn af örlagavöldum hennar pólitíska lífs. „Sem ráðgjafi, yfirlesari, peppari, hringjari en líka mjúk öxl til að halla sér að þegar gaf á bátinn. Traustur, gagnrýninn en fyrst og fremst eldheitur jafnaðarmaður með risa stórt umhverfis- og mannréttindahjarta.“

Rithöfundurinn Anton Helgi Jónsson minnist Marðar af vettvangi Alþýðusambandsins. „Ég man fyrst eftir Merði Árnasyni á stjórnmálafundi sem haldinn var í húsnæði Alþýðubandalagsins við Grettisgötu. Það var gert hlé mitt í þungum umræðum og fólk fékk sér kaffi. Þá bað Mörður um orðið, sagði: Gleymum því ekki að þeir eru líka byltingarmenn — og veifaði Stóns-plötu sem hann setti síðan á fóninn“

Alþjóðastjórnmálafræðingurinn Magnea Marínósdóttir rekur að Mörður hafi verið sannur jafnaðarmaður með sterka réttlætiskennd og eldmóð. 

„Það var aldrei lognmolla í kringum Mörð!“

Ritstjóri Samstöðvarinnar, Gunnar Smári Egilsson, brást illa við fréttum um fráfall Marðar. Hann rifjar upp gamla gamansögu af Merði: 

„Að Linda hefði bannað honum að vera í öllum þessum nefndum, hópum og félögum, á þessum endalausu fundum og Mörður lofað að hætta. En þegar hann þóttist vera út í eldhúsglugga að reykja þá voru alltaf þrír eða fjórir allaballar í garðinum til að funda með honum.“

Badmintonspilarinn 

Hljómsveitar- og kórstjórinn Gunnsteinn Ólafsson minnist Marðar sem badmintonspilara og segir hann hafa verið með lítríkari mönnum. „Þegar ég kom heim frá námi vakti Mörður athygli mína sem ákaflyndur badmintonspilari á næsta velli þar sem hann átti það til að stappa niður fótum ef illa gekk svo söng í salnum. Var þá talað um grundarskjálfta.“

Útvarpsmaðurinn

Plötusnúðurinn Atli Viðar Þorsteinsson minnist Marðar þrátt fyrir að hafa aldrei hitt hann, en hann hlustaði mikið á útvarpsþátt Marðar og Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. „Það var eitthvað við að sjá þessa tvo menn þusa og rífast um mál sem ég náði ekki alveg, sem höfðaði til mín, og ég hélt alltaf með Merði. Það var eitthvað við hann sem sagði mér að hann væri að tala fyrir því sem var rétt, á meðan Hannes var bara að hafa hátt.“

Umhverfissinninn

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, minnist þess þegar Mörður hringdi í hann frá Alþingi fyrir 30 árum síðan til að ræða stöðu hvalamála á alþjóðavettvangi.

Málfræðingurinn

Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson naut aðstoðar Marðar þegar hann skrifaði BA-ritgerð í íslensku um aldamótin. „En hann var málspekingur flestum fremri og eftir hann liggur eitt merkasta rit um málfar íslenskt síðan óþekktur höfundur skrifaði Fyrstu málfræðiritgerðina. Þetta eru Málkrókar sem ég á í geymslu í Noregi um þessar mundir og eiga það sammerkt með safni Íslensks máls Gísla heitins Jónssonar að alltaf öðlast maður nýja visku eða sér eitthvað nýtt við að blaða í.“

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir Mörð hafa reynst sér vel þegar hún var ung blaðakona með ástríðu fyrir íslenskri tungu. Ef hún var í einhverjum vafa með tungumálið þá var Mörður með svörin.

„Fyrir unga blaðakonu með ástríðu fyrir íslenskri tungu var ótrúlega gaman að þekkja Mörð. Það var engin gervigreind til að spyrja og ekkert vissi Google á íslensku svo iðulega hringdi ég í Mörð og bar undir hann hin ýmsu álitaefni. Einhvern tímann hringdum við nokkur í hann af Ölstofunni og vildum fá svör þegar í stað við því hvort maður fengu eða gæfi gúmorinn eða einn á gúmorinn eða hvernig væri réttast að fara með þessa dönskuslettu. Allt vissi hann, en ég held ég hafi aldrei notað orðatiltækið síðan. Íslensk þjóð stendur í þakkarskuld við Mörð fyrir alla hans vinnu í þágu tungumálsins.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅