Lögreglan trúði vart eigin augum þegar rafhlaupahjólið var prófað
Lögreglumenn í þýsku borginni Iserlohn ráku upp stór augu þegar rafhlaupahjól, sem þeir höfðu lagt hald á hjá 16 ára pilti, reyndist geta náð 127 kílómetra hraða á klukkustund. Hjólinu hafði verið breytt til að auka hraða þess langt umfram það sem leyfilegt er.
Lögreglumenn á eftirlitsferð í Iserlohn, í sambandslandinu Nordrhein-Westfalen, að kvöldi hrekkjavökunnar veittu þá athygli hópi ungmenna á rafhlaupahjólum og ákváðu að kanna málið nánar.
Þegar ungmennin urðu vör við lögregluna lögðu þau hins vegar á flótta. Lögreglumönnunum tókst að stöðva einn úr hópnum, 16 ára pilt, og var rafhlaupahjól hans gert upptækt til frekari rannsóknar.
Ótrúleg niðurstaða
Hjólið var í kjölfarið sett á sérstakan prófunarbekk þar sem hraði þess var mældur. Niðurstaðan kom lögreglumönnunum verulega á óvart.
Hjólið náði hvorki meira né minna en 127 kílómetra hraða á klukkustund.
„Þetta er að minnsta kosti met hjá okkur hér í Märkischer Kreis,“ sagði talsmaður lögreglunnar í samtali við Bild.
Hann tók þó fram að um væri að ræða fræðilegan hámarkshraða sem mældist við prófanir án ökumanns. Hjólið myndi því ekki ná sama hraða við raunverulegan akstur, en engu að síður er ljóst að það gæti náð langt umfram leyfilegan hámarkshraða.
Að sögn talsmanns lögreglunnar hafa rafhlaupahjól í auknum mæli komið við sögu slysa og ekki sé óalgengt að eigendur þeirra geri breytingar á þeim til að auka hraðann.
Foreldrarnir einnig til rannsóknar
Sakamálarannsókn hefur verið hafin vegna gruns um að pilturinn hafi ekið ökutæki án tilskilinna ökuréttinda. Foreldrar hans sæta einnig rannsókn vegna gruns um að hafa heimilað notkun ökutækis sem hafði verið breytt með ólögmætum hætti.
Lögreglan varar eindregið við slíkum breytingum og bendir á að bremsur, fjöðrunarbúnaður og dekk rafhlaupahjóla séu ekki hönnuð fyrir svo mikinn hraða.
Afleiðingarnar geti orðið alvarleg slys þar sem bæði ökumenn og aðrir vegfarendur slasast.
Þá fellur leyfi til notkunar ökutækisins úr gildi þegar því hefur verið breytt með þessum hætti og tryggingafélög kunna að hafna því að bæta tjón sem af akstrinum hlýst.
Að sögn lögreglunnar hefur slysum á rafhlaupahjólum fjölgað verulega undanfarin ár í Þýskalandi, ekki síst samhliða auknum vinsældum þeirra meðal ungmenna.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗