Öryggisbrestur hjá þjónustuveitanda Icelandair - Óviðkomandi fékk aðgang að bókunarupplýsingum farþega

Icelandair greinir frá því í tilkynningu að félagið hafi verið upplýst um öryggisbrest hjá Amadeus, alþjóðlegum þjónustuveitanda sem rekur bókunarkerfi fyrir flugfélög víða um heim. Óviðkomandi aðili fékk aðgang að tilteknum bókunarupplýsingum farþega, þar með talið bókunum sem tengjast Icelandair.

Hefur félagið þegar gripið til aðgerða vegna málsins og til að draga úr mögulegri hættu á misnotkun hefur Icelandair ákveðið að gefa út ný bókunar- og miðanúmer fyrir þær óflognu ferðir sem atvikið varðar. Breytingarnar hafa engin áhrif á fyrirhugaðar ferðir farþega sem þurfa ekki að grípa til annarra ráðstafana en að varðveita nýjar bókunar- og miðaupplýsingar sem þeir munu fá sendar.

Sem stendur eru engar vísbendingar um að upplýsingarnar sem öryggisbresturinn varðar hafi verið misnotaðar eða farið í frekari dreifingu. Atvikið hefur verið tilkynnt til Persónuverndar og rannsókn stendur yfir.

Haft er eftir Rakel Óttarsdóttur, framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar hjá Icelandair, í tilkynningu:

„Við tökum öryggi persónuupplýsinga farþega okkar alvarlega. Eftir að við fengum staðfest að bókanir tengdar Icelandair væru meðal þeirra sem atvikið varðaði tilkynntum við það til Persónuverndar og gripum til ráðstafana til að koma í veg fyrir að upplýsingarnar verði nýttar til að fá aðgang að bókunum. Við munum halda rannsókn málsins áfram í samstarfi við Amadeus.“

Icelandair hvetur farþega til að gæta að öryggi persónuupplýsinga og vera á varðbergi gagnvart svikatilraunum. Icelandair mun aldrei óska eftir greiðslukortaupplýsingum eða öðrum viðkvæmum upplýsingum í tölvupósti.

Nánari upplýsingar má finna á vef félagsins en þar kemur fram að atvikið nær til upplýsinga á borð við nöfn, ferðaáætlanir og samskptaupplýsingar. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅