Bróðir Viktor Orban handtekinn og grunaður um mansal - „Ég er skotmarkið“
Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 16:30
Aron Orban (t.h.) var handtekinn vegna gruns um vinnumansals og spillingar í stjórnartíð bróður síns Viktors (t.v.) Myndir/Getty/Facebook
Aron Orban, bróðir Viktors Orban fyrrverandi forseta Ungverjalands, hefur verið handtekinn. Hann er grunaður um mansal og misbeitingu áhrifa í stjórnartíð bróður síns. Þrír aðrir grunaðir samverkamenn Arons voru handteknir.
Fréttastofan AP greinir frá þessu.
Ungverska lögreglan tilkynnti fjórir menn hefðu verið handteknir í tengslum við umfangsmikið mansal. Mennirnir eru sakaðir um að flutt inn hundruð Víetnama í vinnumansali og notað tengsl við stjórn Viktor Orban til þess að útvega dvalarleyfi árið 2024.
Viktor segist skotmarkið
Fram kemur að flestir Víetnamarnir hafi í hyggju að fara úr landi eftir að hafa verið frelsaðir úr ánauðinni. Nöfn sakborninganna koma ekki fram í tilkynningunni en Viktor sjálfur hefur greint frá því að yngri bróðir hans, Aron Orban, væri einn hinna handteknu. Hann segir handtökurnar vera pólitískar ofsóknir.
„Ég er skotmarkið, yngri bróðir minn er bara tól til að ná markmiðinu,“ segir Viktor í færslu á samfélagsmiðlum. „Það sem er að gerast í Ungverjalandi snýst ekki um ábyrgð, heldur um að gera upp pólitískar sakir. Í þessum skítuga leik er markmiðið að ryðja pólitískum andstæðingum úr vegi og koma á eins flokks kerfi.“
Sjá einnig:
Magyar leyfir gleðigönguna í Búdapest á ný
Síðar birtust ljósmyndir af Aron Orban í haldi lögreglu á leið til þess að mæta fyrir dómara og svara til saka.
Hreinsað til
Peter Magyar, sem var kjörinn forseti Ungverjalands í vor, hefur ekki farið leynt með þær áætlanir sínar að hreinsa til eftir 20 ára stjórnartíð Orban. Vinda þurfi ofan af gríðarlegri spillingu í landinu og ítökum Orbans og samflokksmanna hans í fjölmiðlum, dómstólum og fleiri stofnunum landsins.
Í síðasta mánuði var til að mynda György Matolcsy, fyrrverandi seðlabankastjóri og náinn bandamaður Orbans, handtekinn og grunaður um misnotkun fjármuna sem jafngilda um 100 milljörðum íslenskra króna. Í september voru tveir fyrrverandi ráðherrar úr stjórnartíð Orban handteknir og grunaðir um mútuþægni.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗