Birgjar og leigusalar geti setið uppi með tjónið
Samtökin vísa til frétta af því að lögregla hafi í dag innsiglað Hlöllabáta á Bíldshöfða og Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi. mbl.is/Eyþór
Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT, segja afleiðingar lokana og gjaldþrota veitingastaða ná langt út fyrir rekstrarfélögin sjálf.
Leigusalar, birgjar og þjónustuaðilar geti setið uppi með verulegar ógreiddar kröfur þótt þeir hafi staðið við allar sínar skuldbindingar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum vegna frétta af lokunum og gjaldþrotum veitingastaða. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, undirritar yfirlýsinguna.
Rekstrarfélögin ekki aðilar að SVEIT
Samtökin vísa til frétta af því að lögregla hafi í dag innsiglað Hlöllabáta á Bíldshöfða og Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi. Rekstrarfélög staðanna séu ekki aðilar að SVEIT og samtökin þekki hvorki forsendur aðgerðanna né hafi upplýsingar til að leggja mat á þær.
Þá hafi undanfarin misseri komið til lokana og gjaldþrota hjá rekstrarfélögum tengdum Fridays, Adesso, Veislunni og Grillhúsinu.
Samkvæmt fréttaflutningi tengist rekstrarfélög þessara staða, ásamt félögunum að baki stöðunum sem lokað var í dag, með einum eða öðrum hætti í gegnum eigendur og hluthafa, segir í yfirlýsingunni. Öll umrædd félög standi utan SVEIT.
Aðrar forsendur að baki lokun Minigarðsins
Samtökin leggja áherslu á að aðgreina þessi mál frá máli Minigarðsins. Munnbitinn ehf., rekstrarfélag Minigarðsins í Skútuvogi, hafi hætt starfsemi og óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
Þar hafi verið um ákvörðun eigendanna sjálfra að ræða sem samkvæmt upplýsingum þeirra hafi verið tekin til að takmarka frekara tjón. Lokunin hafi verið án aðkomu lögreglu eða lokunaraðgerða yfirvalda.
„Mikilvægt er að halda þessum málum aðskildum enda forsendur þeirra ólíkar,“ segir í yfirlýsingunni.
Samtökin leggja áherslu á að umræða um lokanirnar og gjaldþrotin taki einnig mið af hagsmunum þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem kunni að verða fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þeirra. mbl.is/Kristinn Magnússon
Vernd launakrafna nái ekki til annarra kröfuhafa
SVEIT bendir á að starfsfólk fyrirtækja sem verði gjaldþrota geti notið verndar Ábyrgðasjóðs launa, að uppfylltum lagaskilyrðum. Sú vernd nái hins vegar ekki til leigusala, birgja og þjónustuaðila sem kunni að sitja uppi með ógreiddar kröfur.
Samtökin segja fjölskyldur standa frammi fyrir óöryggi þegar rekstur stöðvast. Jafnframt hafi fjöldi fyrirtækja lagt til vörur, þjónustu og aðstöðu í trausti þess að fá greitt.
Afleiðingarnar geti því orðið verulegar fyrir aðila sem hafi sjálfir staðið við allar sínar skuldbindingar.
Samtökin leggja áherslu á að umræða um lokanirnar og gjaldþrotin taki einnig mið af hagsmunum þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem kunni að verða fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þeirra.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

