„Minn fullkomni jóladagur byrjar á því að sofa út“

Stefanía elskar jólin og allt sem þeim fylgir.

Stefanía elskar jólin og allt sem þeim fylgir. Ljósmynd/Aðsend

Stefanía Hrund Guðmundsdóttir telur niður dagana til jóla enda er hátíðin uppáhaldstími ársins hjá henni. Hún er forfallið jólabarn sem nýtur aðventunnar til hins ýtrasta og veit fátt skemmtilegra en að fylla dagana af jólalegum viðburðum og notalegum stundum. Jólahefðirnar eru margar og undirbúningurinn hefst löngu áður en aðventan gengur í garð.

Stefanía byrjar snemma að huga að jólunum og segir sína nánustu telja hana vera í jólaskapi allt árið.

„Það hefur alveg gerst að ég sitji og rauli jólalög í júlí. Ég held samt að það sé óhætt að segja að jólaskapið byrji að lauma sér inn í lok september eða byrjun október. Þá er farið að dimma á kvöldin og kólna og þá bara gerist eitthvað hjá mér. Ég er með lagalista á Spotify sem heita „jólin sept“ og „jólin okt“ og svo framvegis. Ég viðurkenni fúslega að það er ekkert ólíklegt að koma að mér með jólalög í eyrunum strax í september. Ég reyni þó að hlusta þegar ég er ein eða með heyrnartól, enda vilja ekki allir hlusta á jólalög löngu fyrir jól.“

Stefanía leggur mikið upp úr því að skipuleggja jólin með góðum fyrirvara. Hún segir það auðvelda undirbúninginn og gefa sér meiri tíma til að njóta aðventunnar.

„Ég byrja að skipuleggja jóladagskrána í ágúst. Þá kynni ég mér hvaða jólatónleikar eru í boði og ákveð á hverja mig langar að fara. Ég skipulegg líka hvenær ég get byrjað að skreyta, hvað ég ætla að baka og þess háttar. Það er óhætt að segja að ég sé alltaf með jólin á bak við eyrað. Ég er oft langt komin með að kaupa jólagjafir í júní eða júlí og reyni að nýta útsölur til að kaupa klassíska hluti sem hægt er að lauma í pakka. Svo bæti ég einhverju við þegar nær dregur jólum, jafnvel því sem fólk hefur óskað sér enda eru fáir búnir að gera jólagjafalista um hásumar,“ segir Stefanía og hlær.

Áður en við heyrum hvaða viðburðir eru ómissandi í aðdraganda jólanna skulum við kynnast konunni á bak við jólabarnið.

„Ég er 29 ára landsbyggðarstúlka, fædd og uppalin á Reyðarfirði. Ég útskrifaðist með BA-gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2020 og lauk meistaragráðu í áfallastjórnun frá Bifröst í febrúar á þessu ári. Núna í ágúst hóf ég svo BA-nám í viðskiptalögfræði við sama skóla,“ segir hún og heldur áfram: „Samhliða náminu starfa ég hjá sýslumanninum á Austurlandi og hef gert það undanfarin fjögur ár. Ég nýt mín best hér fyrir austan í kyrrðinni, umkringd fjöllunum mínum og sjónum. Þegar ég bjó á Selfossi í þrjú ár áttaði ég mig á því hvað ég saknaði þess að vakna á morgnana og horfa út á Hádegisfjallið, sem er svona bæjarfjall okkar Reyðfirðinga.“

Á sínum fyrstu jólum klæddist Stefanía rauðum kjól með hvítum kraga. Ljósmynd/Aðsend

„Það tekur sinn tíma að koma öllu upp“

Aðspurð segir Stefanía að aðventan sé tími til að njóta samveru með fjölskyldunni, skapa minningar og slaka á.

„Aðventan fer að stórum hluta í að skreyta hjá mér. Ég á svo mikið skraut að það tekur sinn tíma að koma öllu upp. Ég veit samt fátt skemmtilegra en að fá litlu frændur mína í heimsókn til að setja upp jólaþorpið eða eyða kvöldstund með foreldrum mínum í að hengja jólaóróa og kúlur í gluggann.

Önnur hefð sem ég er alin upp við og held fast í er að sunnudagarnir á aðventunni eru „köku- og kakódagar“. Þá er alltaf gert heitt súkkulaði seinni partinn og jólakökurnar sóttar upp á loft. Við eigum notalega stund saman, oftast við arineld í stofunni og með jólavínilplötur á fóninum. Það er eitthvað svo notalegt við það.

Fyrir mér er líka alveg ómissandi að heimsækja Jólahúsið á aðventunni. Fyrir nokkrum árum hafði ég ekkert komist norður í nóvember og fékk vinkonur að sunnan til mín eina helgi í desember. Við skelltum okkur í sund á laugardagsmorgni og fórum að tala um jólin. Áður en við vissum af vorum við komnar upp úr sundlauginni og lagðar af stað í dagsferð til Akureyrar, bara til að kíkja í Jólahúsið og keyra svo aftur heim. Það gerði reyndar vitlaust veður á leiðinni austur og við vorum mjög lengi á leiðinni. Litlu munaði að Fagradalnum yrði lokað, en þetta fór þó allt vel og gerði ferðina í raun bara enn eftirminnilegri.“

Stefaníu finnst gaman að heimsækja Jólahúsið. Hér er hún þar með vinkonum sínum. Ljósmynd/Aðsend

Hvað er það skemmtilegasta eða eftirminnilegasta sem þú hefur gert í aðdraganda jólanna?

„Það er svo margt! Ætli það standi samt ekki upp úr þegar Frostrósir héldu vinsælu jólatónleikana sína á Eskifirði árin 2008 og 2009, ef ég man rétt. Þá var ég í barnakór á Reyðarfirði og okkur var boðið að vera með bæði árin og syngja bakraddir á tónleikunum. Ég var bara tíu eða ellefu ára og elskaði fátt meira en að syngja, sem ég geri reyndar enn. Það var mikill lærdómur að fá að umgangast stórstjörnurnar sem komu fram. Við eyddum töluverðum tíma með þeim á æfingum og öll voru þau tilbúin að spjalla við okkur, hrósa okkur og gefa góð ráð, bæði um sönginn og lífið. Að standa svo á sviðinu, aftur og aftur fyrir fullu húsi, var þvílík upplifun!

Ég fann þessa tilfinningu aftur árið 2013 þegar ég var í skólakór FSu á Selfossi. Við komum fram á jólatónleikunum Hátíð í bæ og sungum meðal annars með Ragga Bjarna og Guðrúnu Gunnars. Ég hef alltaf verið talin gömul sál, hlustað mikið á gömul íslensk lög og haldið upp á söngvara á borð við Ragga Bjarna og Villa Vill. Þetta var því stór stund fyrir mig sem ungling. Ég fór austur í jólafrí strax eftir tónleikana og öll stórfjölskyldan fékk að heyra af þessu aftur og aftur og aftur.“

Stefanía leggur mikinn metnað í að borða kræsingar um jólin.

Stefanía leggur mikinn metnað í að borða kræsingar um jólin. Ljósmynd/Aðsend

Matvönd og fer ekki á jólahlaðborð 

Hvaða viðburðir eða afþreying eiga alltaf sinn stað í jóladagskránni hjá þér?

„Úrval jólatónleika er töluvert takmarkaðra úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu, en ég reyni samt að fara á eina eða tvenna tónleika á hverju ári. Undanfarin ár hafa kórarnir hér í Fjarðabyggð haldið stóra jólatónleika í desember. Þar koma saman karlakór, barnakór og blandaður kór og það er alveg dásamlegt að verja sunnudagssíðdegi á þessum tónleikum,“ segir Stefanía og heldur áfram:

„Ég er rosalega matvönd og hef því aldrei verið mikið fyrir jólahlaðborð. Mér finnst ansi hæpið að það breytist úr þessu, en maður á víst aldrei að segja aldrei. Annars finnst mér bara flest sem hefur jólabrag skemmtilegt.“

Ef það er ein spurning sem blaðamaður verður að spyrja forfallið jólabarn er það þessi: Hvernig lítur hinn fullkomni jóladagur út hjá þér, frá morgni til kvölds?

„Minn fullkomni jóladagur byrjar á því að sofa út. Ég er mikill lestrarhestur og veit fátt betra en að vaka fram eftir á jólanótt með nýja bók í hendi. Ég fer oft ekki að sofa fyrr en milli þrjú og fjögur. Þegar ég vakna vil ég fara fram og útbúa góðan dögurð fyrir foreldra mína. Oft koma líka bróðir minn, mágkona og strákarnir þeirra tveir. Ég vil verja bróðurparti dagsins í náttfötum við arineldinn, með bók í hendi og konfekt í skál. Svo fer ég í föt og út í göngutúr í snjónum og beint heim aftur í kakó og jólakökur. Svo klæði ég mig yfirleitt upp fyrir kvöldmatinn, enda finnst mér skemmtilegt að vera svolítið hátíðleg. Ég kveiki á mörgum kertum og hef sem minnst af öðrum ljósum, því dimman og kertaljósin fullkomna stemninguna. Fjölskyldan mín hefur alltaf borðað hangikjöt á jóladag, en ég hef því miður aldrei getað borðað það. Ég fæ mér hins vegar alltaf uppstúf og laufabrauð og næli mér svo í skyr eða banana á meðan verið er að ganga frá eftir matinn. Fullkomið jóladagskvöld væri svo bara notaleg náttföt, kertaljós og jafnvel einhver skemmtileg jólamynd.“

„Undanfarin ár hef ég líka verið umboðsmaður jólasveinanna“

Aðspurð hvort hún prófi eitthvað nýtt fyrir hver jól segist Stefanía vera meira fyrir hefðirnar.

„Ég er rosalega föst í hefðum þegar jólin eru annars vegar og hef komið mér upp rútínu sem hentar mér vel. Jólatónleikar eru fastur liður, þótt það sé misjafnt á hverja ég fer. Í fyrra fór ég í fyrsta skipti á Vitringana 3 og þeir voru svo æðislegir að það er alveg spurning um að gera þá að hefð!“ segir hún og heldur áfram: „Kvöldið 22. desember er heilög stund hjá mér því þá byrja jólakveðjurnar á Rás 1. Ég stilli öll útvörp í húsinu og bílunum á rásina svo ég missi örugglega ekki af neinu. Eftir kvöldmat skreyti ég grenigreinar sem ég fer með á leiði fólksins míns til að gera jólalegt hjá því.

Á Þorláksmessu þríf ég húsið með jólakveðjurnar í gangi og síðan skreytum við jólatréð. Þótt ég byrji að skreyta húsið í byrjun nóvember bíður tréð alltaf þar til þrifunum er lokið. Um kvöldið borðum við fjölskyldan „jólapítsu“, hefð sem við tókum upp fyrir nokkrum árum. Undanfarin ár hef ég líka verið umboðsmaður jólasveinanna og hjálpað þeim að skipuleggja ferðir með gjafir um Reyðarfjörð. Það er rosalega gefandi og kemur mér í þvílíkt hátíðarskap.

Þegar síðustu verkin eru búin á aðfangadag og pakkarnir komnir til síns fólks höfum við okkur til fyrir kvöldið. Ég elska að fara í sparifötin og mér finnst það svo hátíðlegt. Við förum alltaf í messu klukkan ellefu um kvöldið og eftir hana fer ég í nýju náttfötin, sem ég kaupi á hverju ári, og kem mér fyrir í sófanum með bók í hendi.“

Að lokum lék blaðamanni forvitni á að vita með hverju Stefanía mælir fyrir þau okkar sem mættu vera duglegri að njóta jólalegra stunda á aðventunni.

„Gerið aðventuna að tíma fyrir samveru. Skipuleggið eitthvað með fjölskyldu eða vinum, en skiljið líka eftir svigrúm til að eiga stund fyrir ykkur sjálf. Reynið að taka að minnsta kosti eina helgi frá til að gera eitthvað saman. Það þarf ekki að vera flókið: jólatónleikar, piparkökuskreytingar, bakstur, föndur eða bara spjall yfir kakóbolla. Þessar stundir eru dýrmætari en margir átta sig á og skapa góðar minningar. Fyrir börnin, sem bíða svo spennt eftir aðfangadegi, gera þær biðina líka skemmtilegri.

Ef ég ætti að mæla með jólatónleikum yrðu Vitringarnir 3 tvímælalaust fyrir valinu. Þeir eru þvílík skemmtun, þótt þeir séu kannski ekki jafn hátíðlegir og margir aðrir jólatónleikar. Ég verð líka að mæla með jólatónleikum Guðrúnar Árnýjar. Þeir eru virkilega notalegir og fallegir og koma manni í ekta hátíðarskap.

Annars get ég ekki lagt nógu mikla áherslu á að njóta aðventunnar í stað þess að fyllast streitu. Jólin koma alltaf, líka þótt ekki sé allt fullkomið. Aðventan líður hratt og þegar upp er staðið munum við ekki eftir hreinu gólfunum eða straujuðu dúkunum, heldur stundunum með fólkinu okkar og minningunum sem við sköpuðum saman.“

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅