Tengist ekki lokun Minigarðsins

Sigmar Vilhjálmsson.

Sigmar Vilhjálmsson. mbl.is/Brynjólfur Löve

Athafnarmaðurinn Sigmar Vilhjálmsson sem var einn eigenda Minigarðsins segir innsiglun Skattsins og lögreglunar á Hamborgarafabrikkunni og Hlöllabátum á Bíldshöfða ekki tengjast neitt lokun Minigarðsins sem tilkynnt var um í byrjun vikunnar. Óskuðu eigendur staðarins eftir gjaldþrotaskiptum.

Sigmar tjáir sig um málið á Facebook og byrjar á orðunum „Þetta er nú meiri vikan.“

Ekki viðloðandi reksturinn í mörg ár

Segist hann þar ekki hafa komið neitt að rekstri Hamborgarafabrikkunnar á Höfðatorgi síðan árið 2018 þegar hann fór úr rekstrinum, en hann stofnaði staðinn á sínum tíma með Jóhannesi Ásbjörnssyni. Þá hafi hann ekki komið að rekstri Hlöllabáta frá árinu 2022.

„Lokun Minigarðsins tengist þessum málum ekki. Það er tilviljun að þetta lendi allt í sömu vikunni, og ég hefði sjálfur ekki valið þessa tímasetningu,“ segir Sigmar í færslunni og bætir svo við á ensku að lögmál Murphys geri ráð fyrir að allt sem geti klikkað muni klikka, en að þar hafi þó ekkert komið fram um að það myndi allt gerast á sömu vikunni.

Líkt og greint var frá fyrr í dag hefur lögreglan staðfest að hafa innsiglað bæði Hamborgarafabrikkuna og Hlöllabáta á Höfðanum að beiðni Skattsins.

Hlöllabátum við Smáralind áður lokað

Áður hafði Hlöllabátum við Smáralind verið lokað. Vörumerkið Hlöllabátar er notað af fleiri en einu rekstrarfélagi og er því ekki allur rekstur samlokustaðanna á sömu hendi.

Sérstakt félag rekur Hlöllabáta við Ingólfstorg í miðborg Reykjavíkur.

Hins vegar rekur félagið Hlöllabátar ehf. samlokustaði að Bíldshöfða 5 og Bústaðavegi 20, samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Hlöllabáta. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅