Dagný kveður sviðið - „Þvílíkt ferðalag“
Dagný Brynjarsdóttir hefur lagt skóna á hilluna eftir frábæran feril með landsliði og félagsliðum.
Dagný, sem er 35 ára gömul, lék 122 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði 38 mörk. Þá vann hún fjölda titla, með Val hér heima, Portland Thorns í Bandaríkjunum og þýska stórliðinu Bayern Munchen.
Dagný, sem ólst upp á Hellu og lék með KFR, átti einnig góðu gengi að fagna með West Ham í enska boltanum og sló hún þá í gegn í bandaríska háskólaboltanum. Þess má geta að hún hafði verið stuðningsmaður West Ham í enska boltanum frá barnæsku.
Yfirlýsing Dagnýjar:
Fyrsta ástin mín. Þvílíkt ferðalag sem þetta hefur verið.
Frá því að alast upp í 850 manna bæ til þess að búa í stórborgum með milljónir íbúa. Ég þorði að dreyma stórt.
Eftir 29 ár í keppnisfótbolta, þar af 21 ár á hæsta stigi, er komið að leiðarlokum.
Ég elska fótboltann enn og mun alltaf gera það. En ég er ekki lengur tilbúin að leggja allt mitt í hann. Hungrið, metnaðurinn og drifkrafturinn sem hafa fylgt mér allan ferilinn beinast nú að öðrum markmiðum. Ég vil vera til staðar fyrir syni mína í hverju skrefi og hjálpa þeim að elta sína drauma, hverjir sem þeir kunna að vera.
Að hafa byrjað ferilinn með strákunum og bestu vinum mínum heima hjá KFR og enda hann hjá félaginu sem ég hélt með alla mína æsku er eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Frá KFR, Val og Selfossi til Florida State, Bayern Munchen, Portland Thorns og West Ham United. Öll þessi félög hafa átt mikilvægan þátt í minni vegferð og mótað mig sem manneskju.
Ísland. Yfir 100 landsleikir og 18 ár í landsliðstreyjunni. Það hafa verið ótrúleg forréttindi og eitthvað sem ég er gríðarlega stolt af. Ég mun aldrei gleyma því að standa inni á vellinum á leikvöngum víðs vegar um heiminn og syngja þjóðsönginn með heila þjóð á bak við mig.
Ég er óendanlega þakklát fyrir öll tækifærin, áskoranirnar, lærdóminn, titlana, bikarana, vináttuna og ógleymanlegu minningarnar. Ég er ekki síður þakklát öllum þeim sem ég hef kynnst á leiðinni – samherjum, þjálfurum, starfsfólki, mótherjum, stuðningsfólki og vinum. Takk fyrir að gera þessa vegferð svona sérstaka.
Ég er sérstaklega þakklát eiginmanni mínum, sonum, foreldrum, fjölskyldu og vinum. Það er ykkur að þakka að ég gat elt drauma mína og látið þá rætast. Takk fyrir að standa með mér á hverju skrefi.
Ég kveð fótboltann full af stolti og þakklæti og tek allan lærdóminn og minningarnar með mér inn í næsta kafla lífsins. Ég hlakka til að verja meiri tíma með fjölskyldu og vinum og takast á við það sem framtíðin ber í skauti sér.
Ég loka þessum kafla með hjartað fullt af þakklæti og tek spennt á móti þeim næsta. Meiri tími með fjölskyldunni, auðvitað áfram fótbolti og vonandi mörg ný ævintýri.
Takk fyrir allt, fótbolti.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗