Orðið á götunni: Kristrún sló í gegn í London

Í síðustu viku stóð Arion banki ásamt fleirum fyrir ráðstefnu í London til kynningar á fjárfestingartækifærum á Íslandi. Ráðstefnan þótti heppnast afbragðsvel og hana sóttu 4-500 manns.

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, var ræðumaður dagsins og orðið á götunni er að hún hafi gersamlega slegið í gegn. Hún fjallaði m.a. um ýmsar breytingar sem ríkisstjórn hennar hefur hrint í framkvæmd á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því stjórnarskipti urðu eftir kosningarnar í nóvember 2024.

Sem kunnugt er talar Kristrún ensku óaðfinnanlega, betur en flestir Bretar, nokkuð sem ekki er hægt að segja um marga íslenska stjórnmálamenn og er þar skemmst að minnast vandræðagangs formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins í Bandaríkjaför þeirra fyrr á þessu ári. Mælska Kristrúnar og örugg framkoma vakti eftirtekt erlendra ráðstefnugesta sem einhverjir höfðu orð á því hversu hæfur leiðtogi hún væri.

Íslendingar sem voru viðstaddir hjuggu eftir því hversu vítt og breitt umfjöllunarefni Kristrúnar var og hve miklu ríkisstjórnin hefur komið í verk á fyrri helmingi kjörtímabilsins, ræða hennar hafi verið eins og vel undirbúin kosningaræða.

Orðið á götunni er að það sé aðdáunarverð fyrirhyggja hjá Kristrúnu að byrja strax undirbúning fyrir næstu þingkosningar en ekki eru nema tvö ár þar til þær fara fram. Fastlega má reikna með því að stjórnarandstaðan verði komin í fullan gír með sinn áróður og slagorð strax á næsta ári. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður á næsta ári og að honum loknum mun flokkurinn, undir forystu Guðrúnar Hafsteinsdóttur eða ekki, blása til orrustu.

Orðið á götunni er að stjórnarflokkarnir ættu allir að setja sig í gírinn til að kynna þær mörgu og jákvæðu breytingar sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir. Stjórnarandstaðan hefur gripið hvert hálmstráið á fætur öðru til að reyna að koma höggi á ríkisstjórnina, sérstaklega þó Viðreisn og Flokk fólksins. Árásir á ráðherra Viðreisnar hafa t.a.m. verið neðan beltis, meinfýsnar og byggt á upplýsingaóreiðu og ósannindum. Ýmsir stjórnarandstöðuþingmenn hafa lagst óvenju lágt í þeim efnum og notið dyggrar aðstoðar skrímsladeildarinnar uppi í Hádegismóum.

Orðið á götunni er að sókn sé besta vörnin og ekki seinna vænna fyrir ríkisstjórnarflokkana að blása til sóknar. Tvö ár eru fljót að líða og nóvember 2028 rennur í garð fyrr en varir.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅