Lögregla staðfestir lokun Hamborgarafabrikkunnar

„Lokað vegna bilunar,“ er ritað á miða sem límdur hefur verið yfir innsigli hins opinbera á Hamborgarafabrikkunni við Höfðatorg sem Skatturinn lokaði í morgun með fulltingi lögreglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég get staðfest að lögreglan aðstoðaði Skattinn við að innsigla, en ég get ekki tjáð mig frekar, ég veit ekkert um þetta,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, inntur eftir því hvort aðgerðir lögreglu í morgun hafi falið í sér lokun Hamborgarafabrikkunnar í Höfðatúni auk Hlöllabáta á Bíldshöfða.

Grétar Stefánsson aðalvarðstjóri staðfesti lokun Hlöllabáta við mbl.is fyrr í dag og sagði fleiri staði hafa verið undir, en hafði ekki vitneskju um hverjir það voru, enda Hlöllabátar á Höfðanum eini staðurinn í umdæmi hans lögreglustöðvar, númer fjögur.

Sá sem þarna situr gæti þurft að þreyja einhvern þorra uns hann gæðir sér á hamborgara frá Hamborgarafabrikkunni við Höfðatorg á nýjan leik. Skatturinn skarst í leikinn í morgun og sagði Snorri Olsen skattstjóri við mbl.is, er hann tjáði sig almennt um lokunaraðgerðir, að með þeim væri óskilvísum fyrirtækjum settur stóllinn fyrir dyrnar að koma sér í frekari skuld við hið opinbera. mbl.is/Eggert Jóhannesson

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅