Líkur á flughálku
Líkur eru á flughálku á suðvestanverðu landinu á morgun, einkum í uppsveitum sunnan- og vestanlands. Einnig gæti orðið flughált á stöku stað á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Snjóa tekur í fyrramálið í fremur hægri suðlægri átt. Smám saman hlýnar og úrkoman breytist yfirleitt í slyddu og síðan rigningu.
Vindurinn verður þó svo hægur að hann nær sums staðar ekki að ryðja kalda loftinu frá. Þar sem úrkoman heldur áfram gæti því fallið frostregn síðdegis og myndast flughálka.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗