Myndskeið: Messi-mark hjá íslenskum táningi
Gunnar Orri Olsen skoraði glæsilegt mark eftir einstaklingsframtak þegar U19 ára lið FC Kaupmannahafnar vann Vejle, 5:1, um síðustu helgi.
Gunnar Orri er 18 ára íslenskur unglingalandsliðsmaður í fótbolta. Hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði Kaupmannahafnar í ágúst þegar hann kom inn á í 3:0-útisigri á Debrecen í þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. F.C. København
Hann er uppalinn hjá Stjörnunni en gekk til liðs við danska félagið árið 2024.
Danska félagið birti myndskeið af markinu á samfélagsmiðlum sínum og má sjá það hér fyrir neðan.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗