Simmi Vill tjáir sig um lokanir veitingastaðanna: „Þetta er nú meiri vikan“

„Þetta er nú meiri vikan,“ segir Simmi Vill og vísar þar til frétta af tíðum lokunum veitingastaða í vikunni, stöðum sem nafn hans hefur tengst. 

Í dag var greint frá lokun Hamborgarafabrikkunnar á Höfðatorgi og Hlöllabáta á Bíldshöfða. Fyrr í vikunni var greint frá lokun Minigarðsins. Simmi bendir á í Facebook-færslu að hann hafi ekki komið nálægt rekstri tveggja fyrrnefndu staðanna í mörg ár: 

„Ég veit að margir tengja mig enn við Fabrikkuna og Hlölla, og ég tek því sem hrósi. En vegna frétta dagsins af innsiglun Hamborgarafabrikkunnar á Höfðatorgi og Hlöllabáta á Bíldshöfða vil ég taka fram að ég hef hvorki átt hlut í né komið að rekstri Fabrikkunnar frá 2018, og ekki komið að rekstri Hlöllabáta frá árinu 2022.

Lokun Minigarðsins tengist þessum málum ekki. Það er tilviljun að þetta lendi allt í sömu vikunni, og ég hefði sjálfur ekki valið þessa tímasetningu.“ 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅