Svaraði ekki hvort Daði ætti heima í ráðherrastól
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vill ekki svara því hvort hún telji Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, eiga erindi í ráðherrastól í ljósi ásakana um að hann hafi ítrekað farið með ósannindi vegna starfsloka Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra Landsvirkjunar.
Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Ólafs Adolfssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.
Sagði Inga óábyrgt að taka undir slíkar ásakanir án þess að hafa forsendur til þess og vísaði til yfirstandandi athugunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
Ekki sáttur við svörin
Ólafur sakaði fjármálaráðherra um að hafa í þrígang sagt ósatt um málefni Landsvirkjunar, bæði á Alþingi og í fjölmiðlum.
Hann vísaði meðal annars til ummæla ráðherrans um stjórnarfundi Landsvirkjunar, skýringa hans á starfslokum Harðar og fullyrðinga um að öll gögn málsins hefðu verið lögð fram.
„Telur ráðherra að sá sem sýnir af sér slíka háttsemi eigi erindi í ráðherrastól?“ spurði Ólafur.
Inga svaraði því til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefði þegar ákveðið að hefja frumkvæðisathugun á málinu og að hún treysti nefndinni til að upplýsa það.
„Ég sé ekki neina ástæðu til þess að ég sé að stíga inn í það á þessu stigi máls til að tjá mig sérstaklega um málið, enda hef ég engar forsendur til þess,“ sagði Inga.
„Ég bíð því bara og treysti Alþingi fullkomlega til að sjá um málið og afla þeirra gagna og koma með þær upplýsingar sem kallað er eftir af þingmönnum og þingheimi. Ég hef ekkert meira um málið að segja,“ sagði hún jafnframt.
Ólafur var ekki sáttur við svörin og sagði ráðherra í raun ekki hafa svarað spurningu sinni og ítrekaði að hann vildi fá afstöðu hennar til þess hvort ráðherra sem ítrekað segði ósatt ætti að sitja áfram.
Persónuleg skoðun komi málinu ekki við
Inga tók ekki afstöðu til þess í síðara svari sínu en sagði óábyrgt að fallast á fullyrðingar Ólafs um ósannindi fjármálaráðherra.
„Mér finnst hins vegar algjörlega og fullkomlega óábyrgt ef ég stæði hér og ætlaði að taka undir það sem háttvirtur þingmaður er að alhæfa hér um ósannindi í þrígang frá hæstvirtum fjármálaráðherra.“
Hún benti á að fjármálaráðherra hefði ítrekað sagst hafa verið í góðri trú þegar hann tjáði sig um málið.
Inga ítrekaði að hún vildi bíða niðurstöðu athugunar Alþingis og sagði málið ekki vera á sínu borði.
„Mínar persónulegu skoðanir koma málinu einfaldlega ekki við.“
Hún tók þó fram að hún bæri mikla virðingu fyrir Herði Arnarsyni og því starfi sem unnið hefði verið hjá Landsvirkjun. Þá lagði hún áherslu á að standa yrði vörð um traust.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

