Hélt hún þekkti Brand en komst að öðru
Katy Perry og Russell Brand á Grammy-verðlaunahátíðinni árið 2011. Síðar sama ár tilkynnti hann henni með smáskilaboðum að hann ætlaði að sækja um skilnað. AFP/Robyn Beck
Katy Perry telur skilnaðinn við grínistann Russell Brand hafa verið fyrir bestu og einbeitir sér nú að fjölskyldunni og framtíðinni.
Þetta segir heimildarmaður fjölmiðla vestanhafs, en Brand var á dögunum dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og þrjár kynferðisárásir.
„Hún hélt að hún þekkti manninn sem hún giftist. Síðar áttaði hún sig á því að hann var ekki sá sem hún taldi hann vera,“ segir heimildarmaðurinn. „Hún veit að skilnaðurinn var á endanum henni fyrir bestu.“
Tilkynnti skilnað með smáskilaboðum
Perry og Brand gengu í hjónaband árið 2010 en rúmu ári síðar tilkynnti hann henni með smáskilaboðum að hann ætlaði að sækja um skilnað. Söngkonan var þá við það að stíga á svið. Í heimildarmyndinni Katy Perry: Part of Me frá 2012 má sjá hana brotna niður baksviðs og samstarfsfólk hennar reyna að hughreysta hana.
Í viðtali við Vogue árið 2013 sagðist Perry ekkert hafa heyrt frá Brand síðan hún fékk skilaboðin. Hún hefði í fyrstu kennt sjálfri sér um skilnaðinn en hætt því þegar hún komst að „hinum raunverulega sannleika“. Hún útskýrði ekki nánar hvað hún átti við.
Sér framtíð með Trudeau
Að sögn heimildarmanns People horfir Perry nú fram á veginn. Hún á sex ára dóttur, Daisy, með fyrrverandi sambýlismanni sínum, leikaranum Orlando Bloom, og er í sambandi við kanadíska stjórnmálamanninn Justin Trudeau.
„Hún er þakklát fyrir ferilinn, nýtur þess að ala upp dóttur sína og er hamingjusöm með Justin,“ segir heimildarmaðurinn. „Sambandið er mjög alvarlegt. Hún sér framtíð með honum.“
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/6/81/681185.jpg)