Vinnuslys á Patreksfirði: Fingurnir drógust inn í roðflettivél

Ágúst Borgþór Sverrisson

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 15:20

Patreksfjörður. Mynd: Wikipedia.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu VÍS vegna vinnuslyss sem varð í fiskvinnslufyrirtækinu Odda hf. á Patreksfirði í mars 2018. Starfsmaður fyrirtækisins slasaðist alvarlega þegar fingur vinstri handar drógust inn í roðflettivél við þrif. Dómurinn taldi að fyrirtækið hefði ekki tryggt öryggi starfsmanna með fullnægjandi hætti og að tryggingafélagið yrði að bera hallann af því að ekki hefði tekist að upplýsa nákvæmlega hvernig slysið varð.

Maðurinn var að þrífa svokallaða Baader 51 roðflettivél þegar slysið varð 21. mars 2018. Hann missti fremsta hluta baugfingurs vinstri handar og hlaut jafnframt fjölþætt brot á litla fingri. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann fékk meðferð á Landspítalanum.

Deilt var um hvernig slysið hefði borið að. Maðurinn sagði að hann hefði verið að þrífa vélina samkvæmt því verklagi sem tíðkast hefði á vinnustaðnum. Þegar hann hefði ætlað að losa roð sem fest hafði í vélinni hefði hann lyft öryggishlíf hennar og vélin stöðvast. Á meðan hann var að losa roðið hefði vélin hins vegar skyndilega farið aftur í gang og dregið hönd hans inn.

Vörpuðu sökinni á starfsmanninn

VÍS hafnaði bótaskyldu og hélt því fram að maðurinn hefði sjálfur gert öryggisbúnað vélarinnar óvirkan. Hefði hann lagt málmhlut á skynjara vélarinnar til að halda henni gangandi þrátt fyrir að öryggishlífin væri opin. Með því hefði hann sýnt stórkostlegt gáleysi og bæri því sjálfur ábyrgð á slysinu, að mati tryggingafélagsins.

Maðurinn mótmælti þessu. Hann sagðist hvorki hafa átt við skynjarann né haft ástæðu til þess. Hann væri pólskur og skildi hvorki íslensku né ensku. Hann hefði jafnframt verið látinn undirrita tilkynningu um slysið þar sem því var haldið fram að hann hefði gert skynjarann óvirkan, án þess að innihald skjalsins væri útskýrt fyrir honum.

Dómurinn taldi að síðari tilkynningin, sem fyrirtækið útbjó tæpum sjö mánuðum eftir slysið, hefði takmarkað sönnunargildi. Í fyrstu tilkynningu um slysið kom ekkert fram um að maðurinn hefði átt við öryggisbúnaðinn. Þá væri ekkert sem sýndi að honum hefði verið þýtt eða útskýrt hvað stóð í síðara skjalinu.

Vinnueftirlitið gerði athugasemdir

Vinnueftirlitið gerði ýmsar athugasemdir við öryggisbúnað vélarinnar eftir slysið. Meðal annars kom fram að öryggisgrind hefði verið vanstillt og opnast of mikið, þannig að hægt væri að koma hendi að hættusvæði vélarinnar. Þá hefði verið auðvelt að gera öryggisskynjarann óvirkan. Fyrirtækinu var gert að gera úrbætur og bæta skriflegar leiðbeiningar um notkun véla og hættur á vinnustaðnum.

Dómurinn taldi ekki sannað að maðurinn hefði gert skynjarann óvirkan þegar slysið varð. Vitni frá fyrirtækinu höfðu vissulega sagt að þau hefðu áður séð hann leggja málmhluti á skynjarann, en ekkert þeirra hafði séð hann gera það umrætt sinn. Þá hafði ekkert þeirra séð vélina í gangi þegar slysið varð.

Ekki gætt nægjanlega að öryggi

Dómurinn taldi að Oddi hf. hefði ekki gætt nægilega að öryggi starfsmanna. Eftir breytingar á öryggisbúnaði vélarinnar hefði verið auðvelt að gera hann óvirkan og fyrirtækið hefði ekki gripið til nauðsynlegra ráðstafana þrátt fyrir að annmarkinn væri þekktur. Einnig hefði skort á skriflegar leiðbeiningar og fullnægjandi áhættumat.

Ekki tókst að staðreyna nákvæmlega hvað olli því að hönd mannsins komst inn á hættusvæði vélarinnar. Dómurinn taldi þó að öryggisbúnaðurinn hefði átt að koma í veg fyrir það. VÍS yrði að bera hallann af því að ekki hefði verið sýnt fram á að búnaðurinn væri fullnægjandi og að ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir slysið.

Var því fallist á kröfu mannsins um að bótaskylda væri viðurkennd úr ábyrgðartryggingu Odda hf. hjá VÍS. Ekki var heldur talið tilefni til að skerða bótarétt hans vegna eigin sakar.

Maðurinn hafði áður fengið varanlega læknisfræðilega örorku metna 8 prósent vegna slyssins og verið óvinnufær í 139 daga. Dómurinn tók ekki afstöðu til endanlegrar fjárhæðar skaðabóta vegna líkamstjónsins heldur aðeins til bótaskyldunnar. VÍS var gert að greiða 1,9 milljónir króna í málskostnað, sem rennur til ríkissjóðs. Gjafsóknarkostnaður mannsins greiðist einnig úr ríkissjóði.

Dóminn má lesa hér. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅