Margir minnast goðsagnar - „Ég trúi því ekki að ég muni aldrei heyra rödd hans aftur“

Danny Kelly, þekktur breskur íþróttaréttamaður og útvarpsmaður, er látinn, 69 ára að aldri. Hann hafði glímt við krabbamein í vélinda.

Kelly starfaði um árabil hjá TalkSport og BBC og var einn af þekktari útvarpsmönnum Bretlands þegar kom að lýsingum frá knattspyrnuleikjum. Hann stýrði einnig hlaðvarpinu View from the Lane, sem fjallar um Tottenham.

Kelly átti langan feril í fjölmiðlum og var meðal annars ritstjóri tónlistartímaritanna NME og Q. Hann stofnaði einnig knattspyrnuvefinn Football365 á tíunda áratugnum.

Kelly var mikill stuðningsmaður Tottenham og hefur félagið sent frá sér yfirlýsingu vegna andláts hans.

„Öll Tottenham-fjölskyldan syrgir útvarpsgoðsögnina Danny Kelly. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans og vinum á þessum erfiða tíma,“ segir í yfirlýsingu félagsins.

Fjölmiðlamaðurinn Danny Baker, náinn vinur Kelly til margra ára, minnist hans einnig með hlýjum orðum.

„Minn kæri vinur, frábæri útvarpsmaður og fyndnasti maður sem ég hef kynnst, Danny Kelly, lést síðdegis í gær. Ég trúi því ekki að ég muni aldrei heyra rödd hans aftur.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅