Leggur til þrjátíu nýjar aðgerðir

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. mbl.is/Eyþór

Lagt er til að flýta lagningu bundins slitlags á tengivegum og styðja börn og ungmenni í dreifbýli til þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi í nýrri byggðaáætlun. Henni fylgir aðgerðaáætlun til fimm ára með 44 aðgerðum, þar af 30 nýjum.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027 til 2041 á Alþingi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu innviðaráðuneytisins.

„Kjarninn í byggðastefnunni sem lögð er fram er að fólk hafi raunverulegt val um hvar á landinu það kýs sér búsetu og að byggðir um land allt hafi tækifæri til að þróast á eigin forsendum,“ sagði Eyjólfur í framsöguræðu sinni.

Loftbrú verði sérstök aðgerð

Meðal nýrra aðgerða eru efling stoðkerfis nýsköpunar og stuðningur við innflytjendur á landsbyggðinni. Þá er lagt til að efla getu landshluta til að leiða eigin þróun og þróa sóknaráætlanir þeirra áfram sem vettvang þess starfs.

Loftbrú hefur verið bætt við tillöguna að aðgerðaáætlun sem sérstakri aðgerð. Með því er lögð áhersla á að festa hlutverk hennar frekar í sessi og styrkja eftirfylgni með því hvernig hún stuðlar að jöfnun búsetuskilyrða.

Einnig er lagt til að verkefnið Brothættar byggðir haldi áfram og verði þróað þannig að það geti nýst fleiri byggðarlögum.

Þá er gert ráð fyrir áframhaldandi stuðningi við verslun í dreifbýli, eflingu almenningssamgangna milli byggða og hvatningu til fjölgunar óstaðbundinna starfa.

Viðmið um árangur sett fram í fyrsta sinn

Byggðaáætlunin nær til landsins alls en sérstök áhersla er lögð á svæði sem glíma við sértækar áskoranir. Jafnframt er horft til þess hvernig byggðir geti nýtt eigin styrkleika til atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og verðmætasköpunar.

Samkvæmt ráðuneytinu byggist tillagan á víðtæku samráði um land allt, meðal annars á opnum íbúafundum. Sérstök áhersla var lögð á samráð við landshlutasamtök sveitarfélaga og ráðuneyti.

Öll ráðuneyti eiga beina aðkomu að áætluninni og hvert þeirra ber ábyrgð á að minnsta kosti einni aðgerð.

Til að styrkja framkvæmd og eftirfylgni eru í fyrsta sinn sett fram viðmið um árangur einstakra aðgerða. Innviðaráðherra mun sem fyrr gera Alþingi grein fyrir framgangi aðgerðanna og áætlunarinnar í heild með árlegri skýrslu.

Fjölmörg verkefni utan byggðaáætlunar

Eyjólfur ræddi einnig í framsögu sinni verkefni sem snerta landsbyggðina en standa utan byggðaáætlunar. Hann sagði ríkisstjórnina hafa unnið að fjölmörgum áherslumálum þvert á ráðuneyti sem styrktu byggðir landsins.

Hann nefndi meðal annars aukið fjármagn til viðhalds vega, fullfjármögnun vetrarþjónustu og stofnun innviðafélags til að hraða stórframkvæmdum í samgöngum.

Þá vísaði hann til aðgerða til að styrkja flutningskerfi raforku, fjölga hjúkrunarrýmum og fjölga læknum á landsbyggðinni. Framkvæmdir við verknámsskóla í fjórum sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins væru jafnframt í burðarliðnum.

„Styrkur Íslands felst í fjölbreytni byggðanna, fólkinu sem þar býr og þeim verðmætum sem þar verða til. Með þessari tillögu viljum við skapa betri skilyrði til að nýta þann styrk og byggja upp samfélög þar sem fólk sér tækifæri og framtíð,“ sagði Eyjólfur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅