Meiri samkeppni um sæti í landsliðinu

Sara Rún Hinriksdóttir á landsliðsæfingu.

Sara Rún Hinriksdóttir á landsliðsæfingu. mbl.is/Eyþór

Sara Rún Hinriksdóttir er lykilmaður í íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta. Íslenska liðið mætir Írlandi á útivelli í dag í fyrsta leik sínum í undankeppni EM.

Í kjölfarið bíða liðsins tveir heimaleikir í Ólafssal, gegn Sviss þremur dögum síðar og Aserbaídsjan þriðjudaginn 17. nóvember.

„Ég er mjög spennt fyrir þessu verkefni og líst mjög vel á það. Þetta eru gríðarlega mikilvægir leikir fyrir okkur og við erum alltaf að taka skref fram á við í okkar leik,“ sagði Sara Rún við mbl.is.

„Mér finnst við vera með betra lið en Írland, en við þurfum að nýta okkar styrkleika og keyra á þær.

Írska liðið er með einn stóran og öflugan leikmann sem verður spennandi að kljást við. Hún er mjög klár og hefur mikil áhrif á leik þeirra. Ég er mjög spennt fyrir þessum fyrsta leik.“

Sara Rún er þrítug og hefur leikið 38 landsleiki fyrir Ísland.

„Samt er ég svona ung,“ sagði hún létt í bragði og bætti við:

„Það er bara frábært að vera í þessum hópi. Þetta eru geggjaðar stelpur sem ég fæ að vinna með og gott þjálfarateymi.“

Framfarir í íslenskum körfubolta

Hún segir kvennakörfuboltann á Íslandi vera í mikilli framför.

„Það eru framfarir, alveg hundrað prósent. Yngri landsliðin eru að standa sig mjög vel og það er mikill metnaður í þjálfarateymunum.

Deildin er líka að verða mjög góð og við erum að fá til okkar mjög góða erlenda leikmenn. Hún er einfaldlega orðin skemmtilegri.

Það er líka meiri samkeppni um sæti í landsliðinu núna en áður. Áður var ákveðinn hópur leikmanna sem var kannski alltaf í liðinu, en núna eru fleiri stelpur sem koma til greina. Samkeppnin er því meiri en hún hefur verið,“ sagði hún.

Sara Rún gekk í raðir KR frá uppeldisfélagi sínu Keflavík í sumar.

„Það hefur verið tekið rosalega vel á móti mér og mér líður vel í Vesturbænum. Við erum enn að slípa okkur saman sem lið, en allt er að verða betra og betra. Ég er virkilega vongóð með framhaldið.“

Útilokar ekki að fara aftur út

Sara Rún hefur einnig leikið í atvinnumennsku erlendis og segir muninn á körfuboltanum hér heima og úti fyrst og fremst felast í daglegu skipulagi.

„Úti eru allir leikmenn atvinnumenn og æfa jafnvel tvisvar á dag. Þeir lyfta einnig og sinna undirbúningi af fullum krafti. Liðin ferðast líka mikið um Evrópu og það fer auðvitað eftir því hjá hvaða félagi maður spilar.

Hér heima er þetta öðruvísi og leikmenn þurfa að sinna fleiri hlutum sjálfir. Ég er þó þakklát fyrir að fá að spila með samkeppnishæfu liði á góðu stigi hér á Íslandi.“

Hún útilokar ekki að snúa aftur í atvinnumennsku erlendis.

„Ég hef aldrei lokað á það. Það kitlar alltaf,“ sagði Sara Rún að lokum.

Sara Rún er leikjahæsti leikmaður íslenska liðsins.

Sara Rún er leikjahæsti leikmaður íslenska liðsins. mbl.is/Eyþór

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅