Lambalundir að hætti Maríu Gomez

Þegar María Gomez vill gera vel við sína verða þessar lambalundir gjarnan fyrir valinu. Leyndarmálið liggur í kryddleginum. Ljósmynd/Aðsend

Þessar marineruðu lambalundir hafa lengi verið í uppáhaldi hjá fjölskyldu Maríu Gomez, sem heldur úti uppskriftavefnum Paz.is. 

María hefur eldað lambalundirnar reglulega frá árinu 2007 þegar hún vill gera vel við sig og fjölskylduna. Í kryddleginum mætast sætt sinnep, sojasósa og púðursykur en lundunum er rúllað upp áður en þær eru steiktar og settar stutta stund í ofn.

Lundunum er rúllað upp fyrir steikingu og þær síðan settar stutta stund í ofn. Berið fram með góðri sósu og uppáhaldsmeðlætinu. Ljósmynd/Aðsend

Kjötið má setja í kryddlöginn kvöldið áður og klára eldamennskuna daginn eftir. Með góðri sósu og uppáhaldsmeðlætinu er þetta tilvalinn helgarmatur eða máltíð til að bjóða gestum.

Marineraðar lambalundir

Í kryddleginum mætast sætt sinnep, sojasósa og púðursykur. Best er að láta lambalundirnar liggja í honum yfir nótt. Ljósmynd/Aðsend

  • Lambalundir, reiknið með 250–300 g á mann
  • 1 dl vatn
  • 2 tsk. sætt sinnep
  • 3 msk. sojasósa
  • 1½ msk. púðursykur
  • Bezt á lambið krydd, eftir smekk
  • Ósaltað smjör til steikingar

Aðferð

  1. Sjóðið vatnið og hellið því í skál. Bætið sinnepi, sojasósu og púðursykri saman við og hrærið vel. Kryddið fer ekki í löginn.
  2. Látið kryddlöginn kólna áður en lambalundirnar eru settar út í.
  3. Látið kjötið liggja í leginum í kæli í að minnsta kosti fjórar klukkustundir, helst yfir nótt eða frá morgni til kvölds.
  4. Hitið ofninn í 90–100°C við undir- og yfirhita.
  5. Takið lambalundirnar úr leginum og kryddið þær létt með Bezt á lambið kryddinu.
  6. Rúllið lundunum upp og festið með tannstönglum.
  7. Hitið ósaltað smjör á pönnu og steikið lundirnar í um 2½ mínútu á hvorri hlið.
  8. Færið lundirnar í eldfast mót og setjið í ofninn í 5–7 mínútur.
  9. Fjarlægið tannstönglana áður en lundirnar eru bornar fram.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅