Skipstjórinn studdist við úrelt lög
Þorskur í kari. Áður var heimilt að sleppa lífvænlegum smærri þorski en nú á að koma með allan afla í land. mbl.is/ÞÖK
Fiskistofa hefur svipt strandveiðibát á Norðurlandi heimild til strandveiða í eina viku á næsta strandveiðitímabili vegna brottkasts á afla í ágúst síðastliðnum. Skipstjóri bátsins taldi sér heimilt að sleppa lífvænlegum þorski samkvæmt eldri reglum sem ekki gilda lengur.
Eftirlitsmenn Fiskistofu tóku myndskeið af brottkastinu og sést þar tólf þorskum kastað útbyrðis bakborðsmegin á bátnum.
Taldi mega sleppa lífvænlegum fiski
Fiskistofa vísar til laga um stjórn fiskveiða sem kveða á um að skylt sé að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar.
Í svörum útgerðarmanns bátsins til Fiskistofu í september síðastliðnum gerir hann ekki athugasemdir við málsatvik „en virðist telja að heimilt sé að sleppa lífvænlegum fiski undir vissum stærðarmörkum,“ segir í ákvörðun Fiskistofu.
„Reglur sem settar voru á grundvelli eldri laga um stjórn fiskveiða gerðu skylt að sleppa lífvænlegum þorski, ýsu og ufsa undir vissum stærðarmörkum, sem fékkst á handfæri. Reglurnar eru ekki lengur í gildi,“ segir Fiskistofa og áréttar að gerð sé krafa til skipstjórnenda um að þeir þekki lög og reglur er snúa að veiðum, þar á meðal um hvaða afla sé heimilt eða skylt að sleppa við veiðar.
Brotið sagt meiriháttar
„Vankunnátta skipstjórnanda á lögum og reglum er ekki gild afsökunarástæða eins og málsatvikum er háttað í máli þessu.“
Fiskistofa metur það svo að fjárhagslegur ávinningur hafi verið af brottkastinu og að brotið ógni hagsmunum af góðri umgengni við nytjastofna sjávar.
Þá auki alvarleikastig brotsins að það hafi verið skipstjórnandi sem kastaði fiskunum útbyrðis, enda eigi hann að vita betur og lúti þar af leiðandi strangara saknæmismati.
„Að teknu tilliti til eðlis og umfangs brotsins og alls þess sem að framan hefur verið rakið er það mat Fiskistofu að brotið teljist meiriháttar.“
Strandveiðibáturinn var því sviptur leyfi til strandveiða í eina viku frá og með gildistöku næsta strandveiðileyfis, að því er fram kemur í ákvörðuninni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗